Borgar­full­trúi sendir Karli skila­boð eftir kveðju­sýninguna: „Karl er einn af þessum mönnum“

Alexandra Briem, borgar­full­trúi Pírata, fór á Fíflið í gær, kveðju­sýningu Karls Ágústs Úlfs­sonar. Karl var um helgina í helgar­blaðs­við­tali Frétta­blaðsins þar sem hann fór yfir sýninguna sem og aðra hluti á sínum ára­tuga löngum ferli.

„Fór á Fíflið, kveðju­­sýningu Karl Ágúst Úlfs­­son. Hún var alveg rosa­­lega vel heppnuð og skemmti­­leg. Fyndin og trega­full, og skemmti­­legt að sjá sam­­spilið milli feðganna líka.
Karl er einn af þessum mönnum sem hafa tekið stóran þátt í því að móta þjóðar­sálina, höfðu á­hrif á húmor fleiri en einnar kyn­­slóðar og skilning okkar á því hvað það var að vera Ís­­lendingur (minn húmor er til að mynda undir alveg þó­nokkrum Spaug­­stofu­á­hrifum held ég, og minningar mínar af ýmsum þáttum stjórn­­mála 10. ára­tugarins litast af því að hafa séð hann draga þá saman í háði),“ skrifar Alexandra á Face­book.

„En hann er líka öflugur sam­fé­lags­rýnir og gagn­rýnandi. Það er eftir­­­sjá af honum úr þessu hlut­­verki, en ég hlakka til að fylgjast með hvað hann tekur sér núna fyrir hendur.
Takk fyrir mig. Og takk fyrir þitt fram­lag til sam­­fé­lagsins,“ bætir hún við.