Borgar­full­trúi segir borgina vera opna á gróðar­starf­semi með barn­æskuna: „Peningur sem ætti að nýtast börnum er sogaður út“

„Út­tekt innri endur­skoðunar á sjálf­stætt starfandi leik- og grunn­skólum var kynnt á fundi skóla- og frí­stunda­ráðs í vikunni. Ýmis­legt kom fram í henni. Það sem kom mest á ó­vart er að einka­reknir leik­skólar hafa heimildir til þess að greiða sér út arð, og það án neinna skil­yrða,“ skrifar Trausti Breið­fjörð Magnús­son borgar­full­trúi Sósíal­ista­flokksinsá Vísi.

„Engar kvaðir eru af hálfu borgarinnar um arð­greiðslur eða hvernig rekstrar­af­gangur sem rekja má til opin­berra fram­laga skuli nýttur. Greiddur er um­tals­verður arður út til eig­enda sem jafn­framt eru á launa­skrá hjá leik­skólanum. Peningur sem ætti að nýtast börnum er sogaður út,“ bætir hann við.

Sam­kvæmt Trausta eru sau­tján sjálf­stætt starfandi leik­skólar í Reykja­víkur­borg sem hljóta sam­tals 2,9 milljarðar króna rekstrar­fram­lags frá borginni auk hús­næðis­fram­lags upp á 311 milljónir króna.

„Þetta eru háar upp­hæðir og því mikil­vægt að við vitum að þær séu alveg örugg­lega að nýtast börnunum og starfi leik­skólanna. Nokkrir þessara leik­skóla eru fé­lags­lega reknir og því er tryggt að allt fé renni beint aftur í leik­skóla­starfið og ekki í neitt annað. En því miður gildir svo ekki um alla sjálf­stætt rekna leik­skóla. Hluti þeirra hefur á síðustu árum greitt sér út meira en 100 milljónir í arð sam­kvæmt skýrslunni. Það þýðir að í stað þess að fé sem borgin er að styðja leik­skólanna með renni beint í leik­skóla­starfið er hluti þess að enda í vasa eig­endanna. Hvernig erum við þarna að tryggja sem bestu gæði leik­skóla­starfs í borginni? Ég get ekki séð hvernig svo er,“ skrifar Trausti.

„Þrír leik­skólanna hafa greitt út rúm­lega 20 milljónir í arð á síðustu árum. Einn þeirra sker sig sér­stak­lega úr og hefur greitt út 65 milljónir á tveimur árum. Auk þess er þar rukkað sér­stakt auka­gjald um­fram það há­mark á leik­skóla­gjöldum sem leyfi er gefið fyrir í samningi við borgina. Annar leik­skóli keypti í­búðar­hús­næði sem ekki er vitað til hvaða nota er ætlað.“

„Dæmi eru um að leik­skólar séu að greiða sér út arð í bullandi tap­rekstri. Út­svarinu okkar er ekki best borgið í að við­halda arð­greiðslum og ein­hverju sem lítur út fyrir að vera í­búða­brask. Borgar­yfir­völd leyfa þessu að við­gangast. Engin mörk virðast sett á hömlu­leysið. Heimildir borgarinnar fyrir skil­yrðis­lausum arð­greiðslum eru að bitna á börnunum. Borgin á ekki að vera að opna á við­skipta­tæki­færi með barn­æskuna. Við eigum að mæta grunn­þörfum þeirra í stað þess að búa til gróða­maskínur í kringum þau.“

Trausti segir að Sósíal­istar hafa ekkert á móti því að til séu öðru­vísi leik­skólar en þeir sem borgin rekur. Sjálfs­eignar­stofnanir eða fé­lags­lega reknir leik­skólar vinna gott starf og það er gott að hafa fjöl­breytni.

„Það er ekki í lagi að leik­skólar séu reknir til þess að raka fé frá börnum. Gróða­starf­semi á ekki heima innan þeirra því það hefur í för með sér hvata til þess að draga úr þjónustu við börnin og setja aukið álag á starfs­fólkið, sem getur auk þess ógnað öryggi barnanna. Hverjar eru okkar frum­for­sendur sem sam­fé­lags? Það er ekki þetta. Að börn séu nýtt sem við­skipta­tæki­færi. Í sjálf­stætt reknum grunn­skólum borgarinnar eru þau skil­yrði sett að þeir megi ekki greiða sér út arð. Hvers vegna gildir hið sama ekki um leik­skóla? Það minnsta sem meiri­hlutinn í borginni getur gert nú er að setja reglur um að arð­greiðslur ættu að fara beint aftur í skólana og nýtast börnunum, með því að fjölga kennurum, bæta leik­völlinn eða sinna við­haldi á skóla­byggingunni.“

„Ein af aðal­á­herslum Sósíal­ista er að börn eigi ekki að þurfa borga fyrir þjónustu borgarinnar. Það felur í sér að þau séu ekki rukkuð um leik­skóla­gjöld. Með því að tryggja það komum við í veg fyrir að leik­skólar geti sópað fé út úr starfinu og fært í vasa eig­enda. Borgin á ekki að vera að niður­greiða slíka starf­semi, heldur ein­fald­lega tryggja að það sé engin gjald­skrá. Við eigum öll að geta sam­mælst um það að börnin séu sett í fyrsta sæti og verið full­viss um að fé úr okkar sam­eigin­lega sjóði sé að renna til barnanna og ekki neitt annað,“ skrifar Trausti að lokum.