Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði það til á fundi borgarráðs í gær að borgin hvetji borgarbúa til að styrkja starf björgunarsveita án þess að kaupa flugelda.
Í tillögunni var bent á að mikið svifryk hefði mælst í loftinu um áramót af völdum flugelda og mengun af þeirra völdum sé vandamál.
„Flugeldar eru aldrei umhverfisvænir eða skaðlausir. Svifryk frá flugeldum er talið varasamt og heilsuspillandi vegna efna sem eru í því. Bent hefur verið á af ýmsum sérfræðingum að loftmengun af völdum flugelda hefur neikvæð áhrif á þá sem fyrir henni verða, sérstaklega viðkvæma hópa. Svifryk veldur ekki einungis óþægindum heldur skerðir einnig lífsgæði margra. Björgunarsveitir hafa treyst á sölu flugelda við tekjuöflun, en styrkja má þær þótt flugeldar séu ekki keyptir. Tvöfaldur gróði felst í því, styrkja starfsemi björgunarsveita sem sinna mikilvægu björgunarstarfi og á sama tíma taka ákvörðun um að menga ekki andrúmsloftið.“
Tillögunni var vísað til meðferðar umhverfis- og heilbrigðisráðs.