Wilhelm Wessman, fyrrverandi hótelstjóri og eftirlaunaþegi, segir að það hafi ekki verið meiningin með stofnun lífeyrissjóðanna að þeir ættu að vera vinnuþrælar ríkisins að lokinni starfsævi sinni.
Wilhelm gerir lífeyrismál – einu sinni sem oftar – að umtalsefni á Facebook-síðu sinni, en hann er einn af þeim sem stendur á bak við málsókn Gráa hersins gegn íslenska ríkinu.
„Sjálfstæðismenn tala mikið um miljónkrónumanninn. Þessir sömu Sjálfstæðismenn ættu að svara því hverjir fá miljón á mánuði úr lífeyrissjóði og ef einhverjir eru, hvað eru þeir mörg % af þeim sem fá greiðslur úr lífeyrissjóðum,“ segir hann og varpar svo ljósi á eigin stöðu:
„Ég greiddi í lífeyrissjóð VR í 45 ár og skatt frá því að ég var 16 ára, starfaði eftir 25 ára aldur sem stjórnandi á þokkalegum launum. Hver er árangurinn? Kr. 219,097 á mánuði frá VR eftir skatt. Kr. 115,908 frá TR eftir skatt og skerðingar eða alls kr. 330,005,“ segir Wilhelm sem sjálfur tók þátt í stofnun lífeyrissjóðs FF, Félags framreiðslumanna.
„Það var ekki meiningin með stofnun lífeyrissjóðanna ( ég tók þátt í stofnun lífeyrissjóðs FF) að við ættum að vera vinnuþrælar ríkisins að starfsævi lokinni, heldur hitt að greiðslur frá sjóðunum ættu að bæta okkur upp lágar greiðslur frá TR,“ segir hann.
Wilhelm hefur látið sig þessi mál varða á undanförnum árum og vakið athygli fyrir baráttu sína. „Nú liggur það fyrir kristaltært að ríkið rænir af mér 65 þúsund krónur á mánuði af eftirlaunum mínum, eða sjö hundruð og áttatíuþúsund á ári eftir skatt,“ sagði hann meðal annars árið 2019.