Í dóminum segir að verðstríð hafi skollið á í lok febrúar árið 2005 með tilkynningu Krónunnar á allt að 25 prósenta verðlækkun á algengustu flokkkum dagvara. Hagar brugðust daginn eftir við með yfirlýsingu um að Bónus myndi standa við verðstefnu sína um að bjóða ávallt lægsta verðið.
\"Verðstríðið stóð yfir fram á mitt ár 2006 og var í hámarki frá febrúarlokum fram í september sama ár milli Krónunnar, Bónuss og Kaskó og Nettó sem eru báðar eru reknar af Samkaupa ehf. Verðstríðinu fylgdi mikil verðlækkun á ýmsum dagvöruflokkum, svo sem brauðmeti og ávöxtum. Verðstríðið var mest áberandi í verðlagningu á mjólkurvörum og fór verð á mjólk niður í að verða ókeypis á tímabili í verslunum Bónuss, Kaskó og Nettó.
Samkeppniseftirlitið rannsakaði verðstríðið og komst að þeirri niðurstöðu 19. desember 2008 að Hagar hefðu brotið gegn samkeppnislögum. Aðgerðirnar hefðu verið til þess fallnar að valda keppinautum samkeppnislegu tjóni og gerði Högum að greiða sekt að fjárhæð 315 milljónir króna vegna brotanna,\" segir í frétt Rúv.
Upp úr þessu hófust margvísleg málaferli.
Í dóminum segir að verðstríðið hafi valdið Krónunni tjóni. Krónunni hafi verið heimilt að fara í verðstríð til að auka hlutdeild sína á markaði, enda stuðli slíkt að virkri samkeppni. Högum hafi hinsvegar verið óheimilt að mæta þessari samkeppni með undirverðlagningu í ljósi markaðsráðandi stöðu sinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Finni Árnasyni forstjóra Haga verður dóminum áfrýjað til Hæstaréttar.