Veðrið það sem af er þessu sumri hefur ekki verið upp á marga fiska, að minnsta kosti ekki fyrir íbúa á suðvesturhluta landsins. Það mun breytast á laugardag því ef spár ganga eftir verður rjómablíða um nánast allt land.
Júnímánuður hefur verið nokkuð kaldur og þá hefur sólin verið í felum löngum stundum. Á fimmtudag mun þó hlýna nokkuð í veðri og má gera ráð fyrir 10 til 19 stiga hita þann daginn, en hlýjast verður á Suðausturlandi.
Hitastig verður svipað á föstudag en þó má gera ráð fyrir rigningu og súld víða. Úrkomulítið verður austantil á landinu og þar verður líka hlýjast, eða allt að 20 stiga hiti.
Samkvæmt sjálfvirku spákorti Veðurstofunnar verður bongóblíða um allt land á laugardag og verður heiðskírt og 16 stiga hiti í Reykjavík á laugardag. Á Akureyri verður 19 stiga hiti og á Egilsstöðum verður 20 stiga hiti. Hlýjast verður þó á Kirkjubæjarklaustri – ef spár ganga eftir – og gæti hitinn þar farið í 21 stig.
Það sem helst gæti sett strik í reikninginn er þokuloft, en í spá Veðurstofunnar kemur fram að líkur séu á þoku við Suðvestur- og Vesturströndina. Á sunnudag verður áfram milt í veðri en líkur eru á að það þykkni upp víðast hvar og er útlit fyrir rigningu víða með kvöldinu.
Hér má nálgast spá Veðurstofunnar.