Tvö smit greindust innanlands í gær en báðir einstaklingarnir sem greindust voru bólusettir og greindust utan sóttkvíar.
Hægt er að rekja að minnsta kosti annað smitið til skemmtanalífsins um helgina en þetta kemur fram í færslu frá Bankastræti Club. Þar segir að smitið hafi meðal annars verið rakið inn um þeirra dyr.
„Við hverjum alla okkar gesti til þess að fara í sýnatöku,“ segir í færslu skemmtistaðarins. „Höldum áfram að vera varkár þrátt fyrir að vera bólusett.“
Í tilkynningu frá almannavörnum kemur þó fram að enn eigi eftir að rekja smitin og að uppruni þeirra sé óþekktur. Einhverjir hafa verið sendir í sóttkví vegna smitanna og er gert ráð fyrir að raðgreining sýna taki nokkra daga.
Engar samkomutakmarkanir eru í gildi innanlands og hafa því talsvert margir leitað í skemmtanalífið að undanförnu. Fólk er hvatt til að hala niður rakningarappi almannavarna nú þegar engar hömlur eru á samkomum.