Bólu­efni gegn CO­VID-19 kemur til landsins um ára­mótin

Ís­lensk heil­brigðis­yfir­völd hafa undir­ritað samning við bólu­efna­fram­leiðandann Pfizer. Samningurinn kveður á um 170.000 skammta til Ís­lands sem dugir fyrir 85.000 manns. Gert er ráð fyrir að Lyfja­stofnun Evrópu veiti lyfinu markaðs­leyfi í síðasta lagi 29. desember. Á­ætlað er að fyrstu skammtarnir frá Pfizer berist um ára­mót, alls rúm­lega 21.000 skammtar sem duga fyrir 10.600 manns.

Þetta kemur fram í til­kynningu frá Stjórnar­ráðinu.

Þar kemur fram að lík­legt sé að notuð verði fleiri en ein tegund bólu­efna hér á landi. Gera má ráð fyrir að bólu­efnin kunni að henta ó­líkum hópum með mis­munandi hætti sem getur haft á­hrif á for­gangs­röðunina, saman­ber reglu­gerð þar að lútandi. Sótt­varna­læknir ber á­byrgð á skipu­lagningu og sam­ræmingu bólu­setningar, svo sem hvaða bólu­efni er notað og fyrir hvaða hópa og er einnig heimilt að víkja frá for­gangs­röðun reglu­gerðarinnar ef nauð­syn ber til.

Fyrir­liggjandi samningar um bólu­efni fyrir 281.000 ein­stak­linga

Tryggðir hafa verið samningar af Ís­lands hálfu við tvo bólu­efna­fram­leið­endur og sá þriðji er í burðar­liðnum. Sam­tals tryggja þeir bólu­efni fyrir rúm­lega 280.000 ein­stak­linga.

Á vegum sótt­varna­læknis er unnið að skipu­lagningu og sam­ræmingu bólu­setningar á lands­vísu og stefnt er að því að birta á­ætlun um bólu­setningu í næstu viku. Í á­ætluninni munu m.a. koma fram upp­lýsingar um for­gangs­röðun við bólu­setningu, hvar bólu­setning mun fara fram þá með hlið­sjón af því magni sem berst hverju sinni, skipu­lag inn­köllunar ein­stak­linga í bólu­setningu og skráning. Þá er nú þegar farið að setja inn upp­lýsingar um bólu­setningu á vef­síðu Co­vid.is og fyrir­hugað er að kynna skipu­lag bólu­setningar þar þegar á­ætlun liggur fyrir. Gerð fræðslu­efnis fyrir heil­brigðis­starfs­fólk um bólu­setningu er langt komið og er fundað reglu­lega með um­dæmis- og svæðis­læknum um skipu­lag bólu­setningar.

Unnið er að þróun á tölvu­kerfi til að styðja við bólu­setningar. Kerfið byggir á því kerfi sem þróað hefur verið fyrir skimanir á landa­mærum en er núna notað fyrir nær allar CO­VID-19 sýna­tökur hér á landi. Kerfið verður notað til að bjóða stærri hópum í bólu­setningu með skila­boðum í Heilsu­veru og strika­merkjum. Kerfið mun einnig styðja við utan­um­hald stærri og smærri for­gangs­hópa. Á­ætlað er að fyrsta út­gáfa kerfisins verði til­búin til notkunar þriðju­daginn 15. desember nk.