Bolli Kristinsson, kaupmaður, Reykvíkingur og íbúi við Laugaveg, segir að Laugavegurinn sé hægt og rólega að breytast í draugastræti. Bolli skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann svarar leiðara Kolbrúnar Bergþórsdóttur sem birtist í Fréttablaðinu þann 24. september síðastliðinn.
„Þar notar hún þann dálk blaðsins þar sem ritstjórnarstefnan kemur fram til að úthúða mér og kallar mig „tuðara“,“ segir Bolli í grein sinni en tilefnið var auglýsing þar sem hann fór yfir 19 atriði sem sýna í hvers konar öngstræti stjórnun Reykjavíkurborgar er komin, að mati Bolla.
„Í umræddri forystugrein Fréttablaðsins vitnar Kolbrún í borgarstjóra sem gaf í skyn að þar sem ég byggi hluta úr ári á Spáni hefði ég ekki gengið um götur borgarinnar til að sjá þá meintu dýrð sem meirihluti borgarstjórnar undir hans forystu hefði skapað. Þeim báðum, Degi og Kolbrúnu, láðist að minna á að ég bý líka hluta úr ári á Laugavegi og við þá götu hef ég starfað stærstan hluta ævinnar og búið með hléum um áratugaskeið,“ segir Bolli meðal annars.
Hann segir að öllum megi ljóst vera að Laugavegurinn, eina skilgreinda verslunargata Reykjavíkur og aðalverslunargatan, er að breytast hratt og örugglega í draugastræti.
„Tómum rýmum fjölgar ört og ekki tjóir að kenna farsóttinni um eða aukinni netverslun. Við höfum séð á eftir fjölda þekktra verslana á síðustu misserum sem hafa flutt starfsemi sína í önnur verslunarhverfi og blómstra þar sem aldrei fyrr. Nú er svo komið að 38 rými standa auð og ónotuð við Laugaveg, frá Hlemmi niður að Bankastræti. Ef við setjum þessi rými í röð niður Laugaveg er laust rými á rúmlega 27 metra millibili.“
Bolli segir að þetta sé ógnvekjandi staðreynd sem bæði Kolbrún og Dagur kjósa að horfa fram hjá.
„Dagur B. Eggertsson hefur ekki enn svarað boði mínu og félaga minna í Miðbæjarfélaginu í Reykjavík um að ganga með honum götuna svo hann fái að kynna sér hvernig ástandið raunverulega er. Við lifum í þeirri veiku von að hann sjái ljósið. Okkur langar líka að bjóða Kolbrúnu með okkur í gönguferð um svæðið, hvort sem borgarstjórinn verður með í för eða ekki. Það er engin ástæða til að óttast okkur kaupmenn, því eins og ég sagði í svari mínu til Dags B. Eggertssonar, þá munu þau fá góðar móttökur hjá grandvöru sómafólki sem hefur margt hvert helgað sig rekstri á Laugavegi alla sína starfstíð og ber hag götunnar fyrir brjósti.“
Bolli segir að honum hafi undanfarin ár þótt átakanlegt að horfa upp á hnignun Laugavegarins. Nú keyri um þverbak og götunni sé að blæða út.
„Þetta er sérlega sárt þar sem ég lifað og starfað við götuna stærstan hluta lífs míns og ber til hennar sterkar taugar. Á sama tíma er óskiljanlegt að vel menntað og hugsandi fólk líkt og Dagur B. Eggertsson og Kolbrún Bergþórsdóttir hreinlega neiti að horfast í augu við staðreyndir og geri lítið úr baráttu fólks fyrir að viðhalda lífsviðurværi sínu. Nei, því skal bara mætt með skætingi og yfirlæti. Það er samt aldrei of seint að sjá að sér og boðið í gönguferðina stendur enn opið.“