Bolli Kristinsson kaupmaður hefur beðist afsökunar á myndbandi sem gert var um Óðinstorg. Myndbandið, sem var frumsýnt í desember, hefur verið talsvert í umræðunni eftir skotárásina á bíl Dags B. Eggertssonar um síðustu helgi.
Bolli birtir yfirlýsinguna á Facebook-síðunni Opnum Laugaveg og Skólavörðustíg. Yfirlýsingin er svohljóðandi:
„ÉG BIÐST VELVIRÐINGAR
Kæru lesendur á F.B síðu okkar Opnum Laugaveg og Skólavörðustíg, það hafa orðið mistök af aðgerðahóp okkar með myndbandi sem var gert um Óðinstorg,
Flest er rétt með haft en ein alvarleg rangfærsla hefur komið fram, að Dagur B. Eggertsson hafi keypt þrjú bílastæði af borginni án útboðs, þetta er rangt og þar sem mitt nafn er í kredit lista í lok myndbandsins bið ég borgarstjóra og aðra aðila málsins afsökunar.
Ég hef aldrei verið ósannindamaður og var mér sagt að allt sem þarna er sagt væri eftir áreiðanlegum heimildarmönnum.
Hef ég beðið um að þetta myndband verði tekið út strax.
Bolli Kristinsson“
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, var sögumaður myndbandsins sem fjallaði um meintan framúrkostnað vegna framkvæmda við Óðinstorg. Myndbandið var birt á vegum aðgerðahópsins Björgum miðbænum, sem Bolli fer meðal annars fyrir, en í því var Dagur meðal annars sakaður um valdníðslu og hroka. Hann lýsti því síðar að honum væri verulega brugðið vegna myndbandsins og hafa einhverjir viljað rekja umrædda skotárás við heimili Dags til myndbandsins þar sem heimili hans kom meðal annars við sögu.
Í viðtali við Fréttablaðið í desember um myndbandið sagði Dagur meðal annars:
„Mér sýnist vera brotið í blað í þessari auglýsingu sem Bolli Kristinsson, fyrrverandi kaupmaður, ber ábyrgð á. Í fyrsta lagi að auðmaður fjármagni rógsherferð í krafti auðs til að sannfæra almenning um hluti sem eru rangir og hafa verið hraktir í öllum fréttum. Og hins vegar að Bolli skuli hafa geð í sér til að gera myndir af heimili mínu að aðalatriði á meðan dylgjur og rakalausar ásakanir eru lesnar yfir. Þetta er mínu mati ömurlegt og nýtt á Íslandi.“