Skimun Kára Stefánssonar og Íslenskrar erfðagreiningar fyrir COVID-19 hefur verið opnuð á sérstakri síðu á vegum Landlæknis, ÍE og Landspítalans. Nokkrum mínútum eftir að frétt Fréttablaðsins birtist fylltist bókunarkerfið en þúsundir Íslendinga skráðu sig á fyrstu klukkutímunum. Nú er búið að uppfæra bókunarkerfið og nú má finna lausa tíma á síðunni.
Í frétt Fréttablaðsins fyrr í kvöld kom fram að allir þeir sem koma í skimun munu fá upplýsingar um niðurstöðurnar, hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar og einnig leiðbeiningar um hvað beri að gera í kjölfarið. Ekki kemur fram hvað þarf að bíða lengi eftir niðurstöðu í hendur.
Hver tími tekur um 15 mínútur og mögulegt er að bóka einn tíma fyrir fjölskyldu eða allt að sex manns. Nauðsynlegt er að taka með sér persónuskilríki. Þegar tími hefur verið pantaður fær viðkomandi sent SMS til áminningar. Síðuna má finna hér.