Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segist hlynntur því að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sínum stað næstu árin. Ef færa á flugvöllinn verður aftaki hans helst geta hýst bæði innanlands- og millilandaflug.
Þetta kemur fram í nýjasta hlaðvarpsþætti Chess after Dark en VB greinir frá.
Bogi segir þar að Hvassahraun verður sífellt óraunhæfari valkostur eftir því sem fjárfest er meira í Keflavíkurflugvelli.
„Ef það væri völlur sem væri bæði innanlands- og millilandaflugvöllur, þá væri það held ég ágætis kostur,“ sagði Bogi. „Ég held að sá kostur – ef ég tala út frá minni skoðun, horfandi á stöðuna – að það verður alltaf óraunhæfara eftir því sem við fjárfestum meira í Keflavík, að millilandaflugið færist eitthvað annað. Að færa innanlandsflugið frá Reykjavík, eitthvert annað en saman við millilandaflugið - það finnst mér ekkert sérstaklega góð hugmynd.“
Bogi segir jafnframt að það gangi ekki upp að færa innanlandsflugið alfarið til Keflavíkur.
„Ég segi bara hiklaust já við Reykjavíkurflugvöll vegna þess að fólk úti á landi þarf að sækja hingað mjög mikla þjónustu. Það er líka frábært fyrir okkur sem búum hér á höfuðborgarsvæðinu að geta bara stokkið niður á Reykjavíkurflugvöll og vera komin til Akureyrar eða Egilsstaða innan við klukkutíma frá því að þú mætir á flugvöllinn.“
Hann var síðan spurður hvort það ætti að einkavæða Keflavíkurflugvöll og sagði Bogi að hann myndi vilja sjá erlenda fjárfesta koma að rekstri og uppbyggingu flugvallarins. Ásamt því að fá inn þekkingu myndi slík fjárfesting hafa í för með áhættudreifingu.
„Við þurfum ekki alltaf að finna upp hjólið hérna á Íslandi, við getum bara horft á hvernig hlutirnir eru úti í heimi og hvar þeir ganga vel. Við höfum séð mörg dæmi um það á flugvöllum úti í heimi að einkavæðing, eða einkavæðing að hluta, hefur gengið mjög vel. Ég tel að það væri mjög hollt fyrir okkur Íslendinga að skoða það mjög alvarlega að fá að erlenda fjárfesta, helst með sérþekkingu í svona rekstri.“