Fréttagoðsögnin Bogi Ágústsson segir að áhorf á fréttatíma Stöðvar 2 hafi hrunið, þó að sagt sé að margir áhorfendur hafi bæst við.
Fréttatími Stöðvar 2 var færður í læsta dagskrá nýverið þar sem auglýsingatekjur stóðu ekki lengur undir rekstri fréttastofunnar. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2, sagði í samtali við Fréttablaðið, að fréttastofan myndu halda áfram að sinna sama hlutverki sínu. „Ég er sannfærður um að flestir landsmenn geri sér grein fyrir mikilvægi fréttastofunnar og trúi því að sem flestir hafi skilning á þessum aðgerðum sem er ætlað að styrkja fréttaþjónustu okkar.“
Viðskiptablaðið hafði eftir Heiðari Guðjónssyni, forstjóra Sýnar, að það væri ekki rétt að að bera saman heildaráhorf á Stöð 2 við línulega dagskrá Ríkisútvarpsins. Aðeins hluti áhorfsins sé í línulegri dagskrá og efnisveitan Stöð 2+ sé utan áhorfsmælinga, um 40 þúsund heimili hafi aðgang að því. „Við erum í dag með fjölbreytt úrval afþreyingar, bæði hágæða línulega dagskrá og beinar útsendingar á íþróttum en ekki síst gríðarlega öfluga efnisveitu sem fer sífellt stækkandi, bæði hvað varðar efni og áskrifendur,“ sagði Heiðar.
Bogi birti hins vegar nýjar áhorfsmælingar og segir á Facebook: „Stöð-2 segir að margir áskrifendur hafi bæst við, fréttaáhorf hefur samt hrunið.“
Þar mælast fréttir Stöðvar 2 í 18.sæti alls, en ná ekki upp í topp 20 í aldurshópnum 12 til 80 ára. Alls mælast Fréttir RÚV með 27 prósent áhorf í efsta sæti, en fréttastími Stöðvar 2 með 10,8 prósent. Mikið af þáttum á RÚV mælast með meira áhorf, meira að segja heimildarþættirnir Leyndarlíf kattardýra.