Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík, var ómyrkur í máli í samtali við fréttavef Vísis í morgun.
Þar lýsti Bogi því að björgunarsveitarmönnum hefði mætt dónaskapur frá fólki við gosstöðvarnar í Geldingadölum þegar þeir hafa reynt að leiðbeina fólki um hvar öruggt er að vera og hvar ekki.
Lögregluborði var settur upp á svæðinu til að varna því að fólk færi upp á ákveðinn hól við gosstöðvarnar, en svo gæti farið að hraunrennsli geri fólk innlyksa á hólnum. Eina undankomuleiðin yrði þá með þyrlu.
Lýsti Bogi því að þrátt fyrir þetta færu margir yfir borðann og upp á hólinn. Var sú ákvörðun tekin að fjarlægja borðann og því sé fólk á eigin ábyrgð.
„Við mætum bara verulega miklum dónaskap frá fólki út af þessu. Það er bara þannig að fólk er bara dónalegt,“ sagði Bogi sem tók þó fram að miklu fleiri en færri sýndu aðstæðunum skilning og fari eftir tilmælum björgunarsveitarmanna. Dónaskapurinn sitji þó lengur í mönnum en kurteisin.
„Við erum náttúrulega ekki að framfylgja svona hlutum fyrir okkur. Þetta er fyrir fólkið, við erum að reyna að halda því náttúrulega öruggu,“ sagði hann við Vísi.
Fréttin hefur vakið töluverð viðbrögð og hafa margir tekið til máls í athugasemdum við hana. Einn stingur upp á ákveðinni hugmynd og fær ágætar undirtektir:
„Setja upp skilti sem gæti haft þennan texta. Þeir sem hætta sér upp á Gónhól eiga á hættu að verða grillaðir eða vinsamlega gefa upp kreditkorta númer fyrir þyrlufyrirtækið sem mun rukka xxxxx kr fyrir björgun.“