Bogi Ágústs­son blandar sér í deilurnar Vestur­bæ: „Nei, Páll það er verið að gagn­rýna þig“

Gríðar­legur hiti er í Vestur­bænum um þessar mundir eftir að kvenna­lið KR féll niður í Lengju­deildina en það var endan­lega stað­fest með tapi í gær. Liðs­menn hafa harð­lega gagn­rýnt um­gjörðina í kringum liðið og segir í frétt DV að þjálfari liðsins, Arnar Páll Garðars­son hefur á­kveðið að taka sök á sig í málinu en gerir það að­eins vegna þess að enginn annar gerir það.

Í fyrra­dag var kvartað yfir því að sjúkra­börur hafi vantað þegar leik­maður KR meiddist. Þá hefur verið í fréttum fyrr í sumar að vallar­þul og vallar­klukku hafi vantað á einum leik liðsins.

Bogi Ágústs­son frétta­maður á RÚV og einn þekktasti stuðnings­maður KR á landinu hefur á­kveðið að blanda sér í málið eftir að Páll Kristjáns­son for­maður knatt­spyrnu­deildar KR fór í við­tal í gær. ,,Það er verið að ráðast á fólkið sem er að gefa vinnuna sína,“ segir for­maður knatt­spyrnu­deildar KR í við­talið við Stöð-2. Nei, Páll það er verið að gagn­rýna þig og aðra for­ystu­menn knatt­spyrnu­deildar,“ skrifar Bogi í færslu í Face­book hópnum, Já, ég styð KR!.

Eins og segir fréttinni á Vísi; ,,Stjórn KR er harð­lega gagn­rýnd fyrir um­gjörð á leikjum kvenna­liðsins í sumar og er sökuð um al­gjört á­huga­leysi gagn­vart liðinu.“ Þetta er ekki gagn­rýni á sjálf­boða­liða,“ skrifar Bogi.

Þórunn Elísa­bet Boga­dóttir dóttir Boga svarar inn­legginu og segir. „For­maðurinn veit alveg jafn vel og við hin (og væntan­lega betur) að þetta snýst ekki um það að ekki hafi verið hægt að manna sjúkra­börur á einum leik vegna skorts á sjálf­boða­liðum,“ skrifar Þórunn.

„Eins og ein­hver sagði hér að neðan, þetta er dropinn sem fyllti mælinn eftir margra ára ó­á­nægju. Við erum væntan­lega öll þakk­lát fólki sem gefur sér tíma í sjálf­boða­liða­störfin. Við vitum líka öll að það er til­tölu­lega ný­búið að skipta um fólk á mörgum póstum innan fé­lagsins, og það tekur tíma að byggja upp. Af hverju ekki bara að taka gagn­rýnina til skoðunar, viður­kenna að ekki hefur verið nægi­lega vel staðið að málum og búa til plan um að gera betur? Ég held að fólk væri alveg til í að gefa ýmsa sénsa og hjálpa til ef málin væru lögð þannig upp, en ekki eins og hér er gert.“