Guðmundi Andra Thorssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, blöskrar meðferðin sem meðlimir Sigur Rósar hafa mátt sæta hér á landi undanfarin misseri.
Eins og greint var frá í gær hefur héraðssaksóknari ákveðið að áfrýja skattamáli gegn meðlimum sveitarinnar, en áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknað liðsmenn sveitarinnar. Söngvarinn, Jón Þór Birgisson, var einnig sýknaður af ákæru um 190 milljóna skattsvik.
Guðmundur Andri segir að hróðurinn sem sveitin bar út fyrir land og þjóð verði aldrei mældur og ekki heldur beinharðar gjaldeyristekjur sem sveitin skapaði.
„Hljómsveitarmeðlimir héldu samt áfram að greiða hér skatta og gáfu raunar út plötu hér sem hét „Takk“. Svei ykkur! önsuðu íslensk yfirvöld – og hvernig vogiði ykkur að afla allra þessara tekna án þess að stofna um þær aflandsfélög eins og allir vita að á að gera með afskriftum og öðrum skyldubundnum auðmannatrikkum,“ segir Guðmundur Andri á Facebook-síðu sinni.
Hann heldur áfram:
„Tónleikahaldarinn þeirra hér á landi snuðaði þá um milljónir og endurskoðandanum þeirra tókst að vantelja fram eignir og tekjur upp á milljónir - og síðan hafa þeir verið meðhöndlaðir sem glæpamenn hér á landi. Eignir þeirra kyrrsettar, rótað í öllu og þeir lögsóttir – og sýknaðir með orðum dómara um sóun á almannafé, enda búnir að greiða margfalt í ríkissjóð vantaldar eignir og tekjur. Takk? Ónei – þeir skulu fá að finna til tevatnsins og eltir áfram af hinu skilvirka íslenska réttarkerfi. Sjálfur segi ég hins vegar af einlægni við þessa miklu listamenn: TAKK!“
Fleiri hafa látið sig málið varða á samfélagsmiðlum, þeirra á meðal er Illugi Jökulsson rithöfundur sem segir: „Samherjamálið? Nja, nei, heyrðu, það er óþægilegt, eigum við ekki að reyna að kreista aðeins meira blóð úr Sigur Rós frekar?“