Blöskrar hvernig talað er um Freyju: „Áfellisdómur um íslenskt samfélag“

„Fordómarnir, fyrirlitningin og á stundum hatrið sem Freyja Haraldsdóttir hefur mætt í þessu ferli er áfellisdómur um íslenskt samfélag.“

Þetta segir meðal annars í nokkuð harðorðri yfirlýsingu sem birtist á Facebook-síðu Þroskahjálpar í gær. Eins og kunnugt er hefur Freyja, eftir langa og stranga baráttu, fengið þau svör frá Barnaverndarstofu að hún sé hæf til að vera fósturforeldri.

Það var fyrst árið 2014 sem Freyja sótti um að gerast fósturforeldri en henni var hafnað af Barnaverndarstofu. Til að gera langa sögu stutta fór málið alla leið fyrir Hæstarétt þar sem Freyja hafði betur. Var niðurstaðan sú að Freyja ætti rétt á að fara í gegnum matsferli eins og allir aðrir. Hefur Freyja sótt svokallað Foster pride námskeið síðan þá.

Kommentakerfin loga

Í tilkynningu Þroskahjálpar er bent á að mikið hafi verið skrifað um mál Freyju á netinu og ummæli sem hafa verið látin falla veki óhug hjá fötluðu fólki, aðstandendum þess og öllum sem vinna að réttindabaráttu fatlaðs fólks.

„Í dag hafa kommentakerfi fjölmiðla logað og margir telja sig geta ályktað um foreldrahæfni hennar án þess að þekkja hana, þá vitneskju, reynslu og menntun sem hún hefur. Rétt er að minna á að öll njótum við aðstoðar við uppeldi barna okkar, með leikskólum, skólum og framhaldsskólum, au pair, barnfóstrum, starfsfólki í frístund, frá ættingjum og aðstandendum og annars konar þjónustu. Börn fatlaðs fólks njóta þessarar þjónustu eins og önnur börn. Þau hljóta ekki skaða af því að alast upp með stórt og fjölbreytt stuðningsnet, nema síður sé.“

Fatlað fólk á rétt til fjölskyldulífs

Bent er á að fatlað fólk um allan heim sinni foreldrahlutverkinu með mikilli sæmd. Margir hafi persónulega aðstoðarmenn sem aðstoða við athafnir daglegs lífs.

„Það þýðir ekki að aðstoðarfólk séu foreldrar barnanna eða ígildi foreldra. Margir fatlaðir foreldrar hafa NPA aðstoð á Íslandi og því er fásinna að halda því fram að Freyja njóti meiri réttinda en annað fatlað fólk. Fatlað fólk á rétt til fjölskyldulífs og stuðning til þess að vera foreldrar. Það á við um fólk sem hefur líkamlega fötlun en einnig fólk með þroskahömlun,“ segir í tilkynningunni en þar er einnig bent á að í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sé kveðið á um þennan rétt og rétt fólks til þess að ættleiða og taka í fóstur börn.

„Fordómarnir, fyrirlitningin og á stundum hatrið sem Freyja Haraldsdóttir hefur mætt í þessu ferli er áfellisdómur um íslenskt samfélag og sýnir okkur hve skammt á veg það er komið í vitundarvakningu um líf og getu fatlaðs fólks en einnig hvað varðar réttindi og sjálfstæði fatlaðs fólks.“

Minnt er á frumvarp um hatursorðræðu sem liggur fyrir Alþingi en þar verður tryggð vernd fatlaðs fólks gegn hatursorðræðu. Vonast Landssamtökin Þroskahjálp að það frumvarp verði að lögum sem allra fyrst.

„Landssamtökin Þroskahjálp óska Freyju Haraldsdóttur innilega til hamingju með þennan mikilvæga sigur í þessari löngu og erfiðu mannréttindabaráttu sem hún hefur háð af aðdáunarverðu hugrekki og þrautseigju, ekki aðeins fyrir sjálfa sig heldur allt fatlað fólk. Á hún miklar þakkir skildar.“

Mikið hefur verið skrifað um mál Freyju Haraldsdóttur á netinu og ummæli sem hafa verið látin falla vekja óhug hjá...

Posted by Þroskahjálp - Landssamtökin Þroskahjálp on Þriðjudagur, 13. apríl 2021