Blokkaður af kennara eftir að hann sagði frá ein­elti

Gunnar Ingvi Ingvars­son, fyrrum nemandi í Víði­staða­skóla steig fram í júlí og greindi frá ein­elti sem hann varð fyrir í skóla. Hann sagði kennara, sem hann taldi sig geta treyst, hafa smánað sig fyrir framan allan bekkinn. DV fjallar um málið.

Gunnar segir kennarann hafa fitu­smánað hann fyrir framan bekkinn með því að biðja Gunnar um að segja upp­hátt hver líkams­þyngd hans væri. Kennarinn skrifaði síðan „Fat boy“ á töflu í kennslu­stofunni.

Gunnar furðar sig á því að ekkert hafi verið gert við at­vikinu en hann segir það hafa fylgt honum lengi. Hann fékk „harð­soðna“ af­sökunar­beiðni frá kennaranum eftir að hafa leitað til skóla­stjórn­enda.

Á TikTok síðu Gunnars segir hann frá málinu, á­samt því að deila mynd­bandinu. Gunnar reyndi að fá við­brögð kennarans með því að merkja hann við mynd­bandið en þá hafi kennarinn blokkað hann á sam­fé­lags­miðlum.

Þá vonast Gunnar eftir því að skóla­stjóri og stjórn­endur Víði­staða­skóla bæti við­brögð sín í máli sem þessu og jafn­vel taki á þessu til­tekna máli loks að festu.

Gunnar ræddi um málið í hlaðvarpsþættinum Eigin konur.