Blandar sér í for­manns­slaginn fyrir konur: „Vissu­­lega er ég mið­aldra hvítur karl“

Lista­maðurinn Snorri Ás­munds­son hefur til­kynnt fram­boð sitt til formanns í Sjálf­stæðis­flokknum. Í til­kynningu sinni gagn­rýnir hann flokkinn fyrir að hafa ekki enn kosið konu sem for­mann flokksins.

Hann segist fórna sér fyrir hönd kvenna og því sé hann á leið í fram­boð.

„Ég til­kynnti það á þriðju­daginn að ef engin kona ætlar að bjóða sig fram í þessum feðra­veldis­flokki þá skyldi ég fórna mér í það fyrir hönd kvenna í nafni kvenna og karla og annarra kynaf­brigða,“ segir Snorri í til­kynningunni.

Snorri hefur starfað sem mynd­listar­maður í um þrjá­tíu ár en hann hefur staðið fyrir ýmsum sam­fé­lags­gjörningum sem vakið hafa mikla at­hygli. Hann bauð sig áður fram til formanns Sjálf­stæðis­flokksins árið 2009 en hlaut ekki kjör. Hann stofnaði síðan Katta­fram­boðið á Akur­eyri fyrir sveita­stjórnar­kosningarnar fyrr á þessu ári

„Vissu­lega er ég mið­aldra hvítur karl en ég er vel tengdur konunni í mér og elska og virði konur meira en karla. Flestir vinir mínir eru konur og þær eru yfir­leitt skemmti­legri og dýpri en við frum­stæðu karl­mennirnir og meira sexý fyrir minn smekk.“

Snorri segir Sjálf­stæðis­flokkinn þurfa á konu að halda í for­manns­stólinn. „Nú er orðið ljóst að þær efni­legu konur sem í flokknum eru ætla ekki að tala skrefið og þá sé ég mig til­neyddan að til­kynna hér með fram­boð mitt í for­manns­stólinn sem fyrsta karl­kyns fjall­kona Reykja­víkur og fyrsta karl­kyns­konan til að bjóða sig fram sem for­maður Sjálf­stæðis­flokksins.“

„Ég heiti því að leiða flokkinn inn í feminiska byltingu og auka jöfnuð í flokki for­réttinda karla. Ég vil sjá feminiskar konur ekki bara konur með punga, njóta sín sem jafningja karl­manna á öllum sviðum. Á­fram með byltinguna, húrra fyrir konum þessa lands, húrra fyrir mæðrum þessa lands og húrra fyrir fjall­konunni. Á­fram Sjálf­stæðis­flokkur.“

Til­kynningu Snorra má lesa í heild sinni hér að neðan:

Kæru flokks­syst­kini í Sjálf­stæðis­flokknum

Nú verða for­manns­kosningar í flokknum á sunnu­daginn. Enn hefur kona ekki setið í for­manns­stóli og af hverju ættu kjós­endur að flykkjast til að kjósa Sjálf­stæðis­flokkinn þegar hann er leiddur af mið­aldra hvítum körlum þjökuðum af stjórn­semi og frekju? Ég til­kynnti það á þriðju­daginn að ef engin kona ætlar að bjóða sig fram í þessum feðra­veldis­flokki þá skyldi ég fórna mér í það fyrir hönd kvenna í nafni kvenna og karla og annarra kynaf­brigða. Vissu­lega er ég mið­aldra hvítur karl en ég er vel tengdur konunni í mér og elska og virði konur meira en karla. Flestir vinir mínir eru konur og þær eru yfir­leitt skemmti­legri og dýpri en við frum­stæðu karl­mennirnir og meira sexý fyrir minn smekk. Móðir jörð þarf meira á konunni og móðurinni meira á að halda á þessum tímum þar sem græðgi mannanna er náttúrunni yfir­sterkari. Sjálf­stæðis­flokkurinn þarf konu í for­manns­stólinn og nú er orðið ljóst að þær efni­legu konur sem í flokknum eru ætla ekki að taka skrefið og þá sé ég mig til­neyddan að til­kynna hér með fram­boð mitt í for­manns­stólinn sem fyrsta karl­kyns fjall­kona Reykja­víkur og fyrsta karl­kyns­konan til að bjóða sig fram sem for­maður Sjálf­stæðis­flokksins. Ég heiti því að leiða flokkinn inn í feminiska byltingu og auka jöfnuð í flokki for­réttinda karla. Ég vil sjá feminiskar konur ekki bara konur með punga, njóta sín sem jafningja karl­manna á öllum sviðum. Á­fram með byltinguna, húrra fyrir konum þessa lands, húrra fyrir mæðrum þessa lands og húrra fyrir fjall­konunni. Á­fram Sjálf­stæðis­flokkur

Snorri Ás­munds­son