Blaðamenn Kjarnans sendu Páli kröfubréf: Hann ætlar ekki að biðjast afsökunar

Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari á Moggablogginu, segist hafa fengið kröfubréf frá Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Kjarnans og Arnari Þór Ingólfssyni blaðamanni miðilsins.

Páll hefur farið mikinn á bloggsíðu sínu undanfarinn misseri og varpað fram samsæriskenningum í tengslum við mál Samherja.

Í færslu á bloggsíðu sinni segist Páll hafa fengið kröfubréf og hótað honum málsókn ef hann biðst ekki afsökunar á og dregur til baka eftirfarandi ummæli sem féllu í færslu á bloggsíðu hans þann 2. apríl síðastliðinn:

„Arn­ar Þór Ing­ólfs­son og Þórður Snær Júlí­us­son, blaðamenn á Kjarn­an­um, [...] eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans.“

Páll segir að Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hafi sent bréfið fyrir hönd þeirra og þar komi fram að næsta skref verði málsókn ef ekki verður orðið við kröfum um afsökun og afturköllun ummæla.

„Vandast nú mál bloggara. Miðað við málssóknir af þessum toga er líklegur kostaður 1 til 1,5 m.kr. hvort sem málið vinnst eða tapast. Það eru þrenn eða fern útborguð mánaðarlaun kennara. Ódýrast væri að biðjast afsökunar og segja ummælin röng. En þá væri beðist afsökunar á sannindum og þau sögð ósönn. Illa er komið fyrir manni sem fargar sannindum og segir rétt rangt til að sleppa við málssókn,“ segir Páll í færslu sinni og ítrekar fyrri skrif sín.

Hann segir að hann geti ekki beðist afsökunar og enn síður játað að rangt hafi verið farið með.

„Gögn frá lögreglu sýna að Arnar Þór og Þórður Snær eiga aðild, beina eða óbeina, að refsiverðu athæfi. Í væntanlegu sakamáli verður ákært á grunni sakamálarannsóknar, verjendur blaðamannanna færa rök fyrir sýknu og dómari úrskurðar. Þeir sem eiga málsaðild eru ákærðu, vitni og tjónþoli - Páll skipstjóri. Ef ríkisstyrktur Kjarninn, Arnar Þór og Þórður Snær, stefna bloggara fyrir að birta sannindi er svo komið að þöggun er vopn blaðamanna. Frjáls umræða var einu sinni aðalsmerki blaðamanna. Nú er hún Snorrabúð stekkur.“