Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi ritstjóri og núverandi meðlimur í Sósíalistaflokknum, skýtur föstum skotum að ríkisstjórn Íslands og segir að blaðamannafundur hennar í Hörpu fyrr í dag hafi verið með því allra ósvífnasta sem hann hafi séð.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Gunnars á Vísi. „Ríkisstjórn kynnir eitthvað sem gæti litið út fyrir ókunnuga sem hertar aðgerðir á landamærum, en sem eru það í raun ekki,“ skrifar Gunnar. Þá næst telur hann upp það sem þjóðin hefur þurft að þola síðastliðið ár og segir hertar aðgerðir sem boðaðar hafa verið engu breyta.
„Ég trúi því ekki að Alþingi láti hafa sig að fífli með því að taka þetta boðaða frumvarp til meðferðar; sex vikna heimild til að leggja kvaðir á fólk sem ekki mun koma hingað? Sem svar við kröfum almennings um hertar aðgerðir strax?
Þau sem héldu að ríkisstjórnin væri að boða eitthvað í líkingu við Nýsjálensku leiðina við landamærin hljóta að hafa orðið fyrir sárum vonbrigðum.“
Ekkert Evrópuland með fleira en 1000 smit
Þá bendir Gunnar Smári á að ekkert Evrópuland sé með fleiri en 1000 smit á síðustu 14 dögum á hverja 100 þúsund íbúa samkvæmt tölum evrópsku sóttvarnarstofnunarinnar.
„Í dag verður því enginn ferðamaður þaðan undantekningarlaust skikkaður í sóttvarnahús samkvæmt ráðagerðum ríkisstjórnarinnar. Og enginn eftir 1. júní. Þá verður enginn skikkaður í sóttvarnahús, ekki einu sinni fólk sem kemur frá löndum með fleiri en 1000 smit á 100 þúsund íbúa, sem í dag eru aðeins örfá lönd í heiminum og ekkert sem hefur beinar flugtengingar við Ísland, líklega ekki önnur lönd en Curacao, Bermuda og San Marino. Var einhver að krefjast reglna um flugsamgöngur við þau?“
Hann telur því næst upp þau sex lönd þar sem smit eru á milli 750-1000 síðustu 14 daga á hverja 100 þúsund íbúa. Það eru Ungverjaland, Pólland, Kýpur, Eistland, Svíþjóð og Frakkland.
„Ekkert flug kemur frá þessum löndum til Keflavíkur á morgun en vél er ráðgerð frá Stokkhólmi á fimmtudag. Farþegar úr þeirri vél verða skikkaðir í sóttvarnahús og verða vera þar í fimm daga nema þeir geti sýnt fram á að þeir geti dvalið annars staðar í sóttkví við viðunandi aðstæður, t.d. heima hjá sér, í sumarbústað eða einhvers staðar þar sem telja má að hægt sé að dvelja í fimm daga án samgangs við annað fólk. Eins og dæmin sanna er ekki þar með sagt að fólkið dvelji á þessum stöðum eða haldi sóttkví.“
Segir þá sem vildu engar aðgerðir hafa orðið ofan á
Að síðustu segir Gunnar Smári að breytingar ríkisstjórnarinnar muni hafa lítil ef einhver áhrif næstu daga. Og ekki sýnileg áhrif næstu sex vikur. Enginn sem geti vísað á viðunandi stað til sóttkvíar verði skyldaður á sóttkvíarhótel.
„Ég trúi því ekki að enginn ráðherranna í ríkisstjórn og enginn þingmaður ríkisstjórnarflokkanna hafi ekki viljað harðari aðgerðir. Það er því augljóst að þau sem vildu harðari aðgerðir urðu undir kröfum þeirra sem engar aðgerðir vildu. Niðurstaðan er í raun engar aðgerðir en þær eru kynntar sem þær séu einhverjar aðgerðir. Þau sem engar aðgerðir vildu fengu að ráða innihaldinu en hin sem vildu aðgerðir fengu að ráða kynningunni. Einhver gæti haldið að þar með hafi allir fengið eitthvað, en reyndin er auðvitað að þau sem ekki vildu neinar aðgerðir fengu allt. Hin ekkert,“ skrifar Gunnar Smári.
„En til hvers var þessi blaðamannafundur? Mér dettur helst í hug að hann hafi verið sigurstund fyrir Sigríði Á. Andersen, Brynjar Níelsson, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og aðra últra-hægrimenn, fögnuður yfir að halda völdum og geta áfram rekið stefnu sína þvert á vilja mikils meirihluta þjóðarinnar.“