Heimir Hannesson, blaðamaður á DV, vandar heilbrigðisyfirvöldum ekki kveðjurnar á Facebook vegna stefnu þeirra í sóttvarnamálum.
„Samfélag sem fórnar lífum, líkamlegri og andlegri heilsu ungmenna fyrir hagsmuni (mjög) fullorðins fólks er sjúkt. Virkilega sjúkt. Samfélag sem fórnar hagsmunum þeirra sem þurfa að sækja í félagsskap og mataraðstoð Hjálpræðishersins á altari sóttvarna en er til í að sjá í gegnum fingur sér þegar kemur að klístruðum jólatónleikum, enda neyðin ekki það mikil, er sjúkt,“ skrifar heimir á Facebook-síðu sína.
Frá því fyrsta Covidsmitið kom upp segir Heimir að 80 til 90 manns hafi fyrirfarið sér. Langflest hafi verið yngri en 45 ára samkvæmt bráðabirgðatölum Landlæknis). Á sama tíma hafi 37 dáið úr Covid, langflestir eldri en 70 ára.
„Aftur og aftur er traðkað á rétti barna til þess að stunda sitt nám til að margbólusettir kennarar smitist ekki af einhverju sem er einfaldlega ekki hættulegt að fá, Covid,“ skrifar Heimir sem kveðst hafa spurt aðstoðarmann Landlæknis hvers vegna ekki lægi fyrir fjöldi sjálfsmorða nema fyrir fyrri helming árs og þá aðeins bráðabirgðatölur. Ástæðan hafi verið sögð skortur á réttarmeinafræðingum.
„Það er samt hægt að greina hvert einasta covid smit ofan í kjölinn, raðgreina í ræmur og elta hvar þúsundir manna hafa hóstað, hnerrað og heilsast marga daga aftur í tímann. En það er ekki hægt að taka saman hversu margir tóku eigið líf í þessu landi síðustu sex mánuði. Það er sjúkt,“ skrifar Heimir í færslunni sem nú hefur einnig verið birt sem ritstjórnarpistillá dv.is.
Einnig segir Heimir að það sé sjúkt að ekki sé hægt að fjármagna geðheilbrigðispakkann almennilega þegar 2 prósent af kostnaðinum við Covid myndu duga til þess. „Stefna íslenskra heilbrigðisyfirvalda er helsjúk,“ ítrekar hann.
Rakið er í færslu Heimir að Hjálpræðisherinn hafi vegna sóttvarnareglna þurft að vísa frá þrjú hundruð manns sem höfðu skráð sig í jólamat. Af þeim hafi eitt hundrað og fimmtíu verið börn.
„Hvar ætli þau hafi verið um jólin?“ spyr Heimir. „Á sama tíma voru undanþágur veittar svo efri-millistétt landsins kæmist á jólatónleika og á Jómfrúna í Þorláksmessutradissjón. Ekkert að því. Dauðlangaði sjálfum á Jommuna. En mig langaði meira að börnin fengju að borða.“