Kristrún Heimisdóttir, lögmaður og stjórnarmaður í sjávarútvegsfyrirtækinu Brimi, segir að blaðamaður Morgunblaðsins hafi beðið sig afsökunar í dag á því að í blaði dagsins hafi verið prentaður texti hans í viðtali við hana sem innihélt setningar sem hún sagði ekki og lýsa skoðunum blaðamannsins en ekki hennar. Frá þessu greinir hún á Facebook-síðu sinni.
Í helgarblaði Morgunblaðsins birtist viðtal við Kristrúnu sem Andrés Magnússon blaðamaður tók með yfirskriftinni „Nýju“ er hvergi að finna. Þar er fjallað um ritrýnda grein sem Kristrún skrifaði í Tímarit lögfræðinga um nýju stjórnarskránna.
Sendi leiðréttan texta
„Þrátt fyrir að ég gerði að skilyrði fyrir hinu prentaða viðtali að ég fengi textann til yfirlestrar, því auðvitað talar enginn fyrir mig annar en ég sjálf, og þrátt fyrir að ég sendi verulega leiðréttan texta í gærkvöld þar sem ég þurfti að fella út orð sem ekki voru mín og ég myndi aldrei nota, prentaði blaðið útgáfu blaðamannsins og þannig birtist viðtalið í dag,“ skrifar Kristrún á Facebook.
„Ég leitast alltaf við að vanda orð mín um allt og alla og mér finnst mjög miður að svona fór,“ segir hún enn fremur og bendir á að í viðtali hennar við Dagmálaþátt Morgunblaðsins og Morgunvaktar Rásar 1 síðastliðinn föstudag megi heyra hennar orð um málið. Ítarlegasta umfjöllunin sé þó í áðurnefndri grein í Tímariti lögfræðinga.