Bjössi í World Class ó­sáttur: Segir upp 90 starfs­mönnum – „Fá­rán­leg mis­munun“

World Class hefur sagt upp 90 starfs­mönnum og taka um­ræddar upp­sagnir gildi nú um ára­mótin. Björn Leifs­son, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri World Class, segir í frétt RÚV að upp­sagnirnar nú nái til þeirra sem voru í undir 70% starfs­hlut­falli og hluta­bóta­leiðin nær ekki yfir.

Björn – eins og aðrir eig­endur líkams­ræktar­stöðva – hefur gagn­rýnt sótt­varnar­reglur harð­lega en hann telur að mikil mis­munun felist í því að líkams­ræktar­stöðvum sé gert að hafa lokað á meðan önnur starf­semi má vera opin. Fátt annað hafi verið í stöðunni en að segja upp fólki.

Björn segir að ef líkams­ræktar­stöðin fái að opna í bráð sé mögu­leiki á því að starfs­mennirnir verði ráðnir aftur, en hann sér ekki fram á að það verði á næstunni.

„Eins og ég hef sagt áður þá finnst mér þetta vera fá­rán­leg mis­munun, að það megi vera í­þróttir alls staðar og sund­laugar opnar - en líkams­ræktar­stöðvar megi ekki vera opnar. Við getum verið með grímu­skyldu, við getum passað bæði sótt­varnir og fjar­lægðar­mörk. Það er gríðar­lega erfitt að vera í þessari stöðu,“ hefur RÚV eftir honum.