Athafnamaðurinn Björn Leifsson, betur þekktur sem Bjössi í World Class, virðist heldur betur vera hress í dag, enda nýbúið að tilkynna að samkomutakmarkanir verði rýmkaðar og tækjasalir opnaðir að nýju, í fyrsta skiptið síðan í október.
Bjössi birti nú fyrir skemmstu myndband af sér þar sem hann lyftir heilum 225 kílóum í réttstöðulyftu. Skýtur hann þar með Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra, ref fyrir rass sem á dögunum tók 120 kíló, þó í bekkpressu, sem er ekki alveg það sama.
Sjá einnig: Sjáðu bréfið sem Bjössi í World Class sendi Svandísi
Líkt og fram hefur komið ákvað Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, að fallast á tillögur Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis um rýmri samkomutakmarkanir í dag. Fjöldatakmarkanir verða enn 20 manns en ræktin opnar, það er að segja tækjasalir, með helmings mögulegra gesta, auk þess sem barir og skemmtistaðir opna að nýju, þó einungis til kl. 22.
Bjössi í World Class hefur lengi eldað grátt silfur með Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni vegna lokunar líkamsræktarstöðva. Birti hann til að mynda bréf sem hann sendi Þórólfi, þar sem hann lýsti því yfir að hann teldi lokun líkamsræktarstöðva ekki löglega. Hefur hann ítrekað lýst því hvernig hann hefur orðið fyrir milljóna tjóni vegna lokunarinnar.