Björn Birgisson, íbúi í Grindavík, sem er eþkktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum, varpar fram áhugaverðri kenningu eða tilgátu á Facebook í dag. Vangaveltur hans varða kaup Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík.
„Pétur Hafsteinn Pálsson lætur senn af starfi forstjóra Vísis í Grindavík og gerist framkvæmdastjóri sama fyrirtækis í eigu síldarvinnslunnar í Neskaupsstað, lesist í eigu Samherja á Akureyri“
Þetta skrifar Björn, sem telur að Pétur muni ekki verða lengi í nýja starfinu.
„Pétur varð 63ja ára þann 6.júlí síðastliðinn og því er ljóst að hann verður ekki lengi í sínu nýja hlutverki.“
Segir hann og bætir við: „Í virðingarksyni við Pétur, systkini hans og foreldar verða ekki miklar breytingar á meðan hann stjórnar í Grindavík.“
Að lokum skrifar Björn:
„Eftir að hann hættir má hins vegar búast við hverju sem er. Sporin hræða og vítin eru til að varast þau.“