„Það er alltaf hægt að segja að það þurfi að gera meira, en þess háttar gagnrýni er nákvæmlega sú skemmdarverkastjórnarandstöðufræði sem Davíð Oddsson stundaði. Skemmdarverkapólitík sem grefur undan almennu trausti í samfélaginu og fríar valdhafa frá ábyrgð í alvarlegum málum.“
Þetta segir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Björn Leví byrjar pistilinn á að vitna í fleyg ummæli eftir Davíð Oddsson sem Davíð lét falla í Morgunblaðinu árið 2001. Þar talaði hann um þá pólitík sem hann stundaði þegar hann var í stjórnarandstöðu.
„Ég gerði öll mál tortryggileg og fylgdi þeirri reglu veiðimannsins að maður má ekki einungis kasta flugu sem manni finnst falleg því að maður veit aldrei hvaða flugu laxinn tekur. Ég tók því upp öll mál, jafnvel þó að ég væri í hjarta mínu samþykkur þeim, og hjólaði í þau því að ég leit á stjórnarandstöðu sem stjórnarandstöðu.“
Björn Leví segir að þessi fræði um stjórnarandstöðu séu rugl.
„Þessi stjórnarandstöðufræði sem núverandi ritstjóri Morgunblaðsins beitti eru ekkert annað en aðvörunin sem strákurinn fékk sem kallaði úlfur, úlfur. Það verður enginn munur á stjórnarandstöðu vegna máls sem er gott eða slæmt. Utan frá lítur út fyrir að galað sé úlfur, úlfur í öllum málum sem gerir það að verkum að lokum að enginn tekur mark á stjórnarandstöðu. Það er auðvitað heppilegast fyrir valdhafa þegar allt kemur til alls. Gagnrýnin verður að bakgrunnssuði og það verður alltaf að kalla hærra og hærra til þess að láta í sér heyra. Afleiðingin er að enginn heyrir og mál sem eru virkilega gagnrýniverð raungerast og kosta okkur formúu fjár eða brjóta á mannréttindum, eins og skipun dómara í Landsrétt og afturvirk skerðing lífeyris.“
Björn Leví segir að í ástandi sem nú er uppi í þjóðfélaginu verði þessi andstöðufræði enn alvarlegri því meðan ástandið varir verði eftirlit með aðgerðum stjórnvalda mikilvægara en áður.
„Mesta freistingin til þess að misnota vald er nefnilega í neyðarástandi. Þá er mjög auðvelt að réttlæta allt, hvort sem réttlætingin stenst skoðun eða ekki. Neyðin gerir ábyrgð stjórnvalda vegna aðgerða mun meiri sem og gagnrýni stjórnarandstöðu. Að beita aðferðafræðinni „að hjóla í öll mál“, sama hvað, er því sérstaklega óheiðarleg pólitík þegar um neyðarástand er að ræða,“ segir Björn Leví sem vill koma ákveðnum skilaboðum á framfæri.
Hann segir að þó hann geti sagt eitt og annað um aðgerðir stjórnvalda á síðustu dögum þá hafi þær á heildina verið ágætar. Það sé alltaf hægt að segja að gera þurfi meira.
„En þess háttar gagnrýni er nákvæmlega sú skemmdarverkastjórnarandstöðufræði sem Davíð Oddsson stundaði. Skemmdarverkapólitík sem grefur undan almennu trausti í samfélaginu og fríar valdhafa frá ábyrgð í alvarlegum málum. Nú er því rétti tíminn til þess að segja að aðgerðir stjórnvalda hingað til hafa verið góðar og ég veit að það verður meira gert á næstunni.“
Björn Leví segist að endingu skilja óþolinmæði ýmissa hópa, til dæmis þá sem töldu sig ekki hafa verið með í ráðum þegar tilkynnt var um fyrstu aðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19.
„Það þýðir ekki að þau hafi gleymst né séu neðar í forgangsröðuninni. Ég bið því fólk að fylgjast vel með valdhöfum, og líka með stjórnarandstöðu. Pössum upp á að pólitíkin geri slæmt skárra og gott betra. Ekki öfugt.“