Björn um þá sem tala gegn bólusetningum: Prófið að labba um kirkjugarða borgarinnar

Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítalans, er ómyrkur í máli gagnvart þeim sem tala gegn bólusetningum eða vilja af einhverjum ástæðum ekki láta bólusetja sig.

Björn Rúnar ræddi bólusetningar og stöðu mála í kórónuveirufaraldrinum hér á landi í Bítinu á Bylgjunni í morgun eins og Vísir fjallaði um.

Hann kvaðst ósammála Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, sem hafa látið hafa eftir sér að leiðin að hjarðónæmi sé að meirihluti þjóðarinnar sýkist af COVID-19. Hann hefur trú á því að bóluefnin muni reynast mikilvæg, einkum bóluefni Pfizer sem talið er gagnast vel gegn Delta-afbrigði veirunnar.

Björn var með ákveðin skilaboð til þerra sem vilja ekki láta bólusetja sig.

„Ég hvet þetta fólk til að taka sér göngutúra um kirkjugarða Reykjavíkur og skoða legsteinana. Sjá það hvernig barnaveiki var að stráfella kornabörn. Þetta er átakanlegt oft að horfa á þessa legsteina og sjá ártölin. Heilu fjölskyldurnar á sínum tíma. Þannig ég hvet fólkið til að labba þarna um og velta þessum málum fyrir sér og svo bara að tala þá við mig eða við fólkið sem hefur helgað líf sitt þessu og hefur engra hagsmuna að gæta.“

Björn gaf lítið fyrir þær kenningar að lyfjafyrirtækin stjórnuðu ferðinni því gróðinn væri þeirra. „Ég held að það sé engan veginn rétt. Þau hafa gríðarlega hagsmuni af því að þetta sé öruggt og þetta virki. Ég og fleiri værum fljót að loka á þau – og náttúrulega heilbrigðiskerfið – ef þetta væri ekki að virka og væri ekki öruggt.“

Innfelda myndin hér að ofan er fengin af vef Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og er úr Berufjarðarkirkjugarði. Hún er af gröf sex systkina á aldrinum 2-12 ára sem dóu úr barnaveiki á tímabilinu 14. maí til 2. júní 1862. Sjúkdómurinn var algengur á árunum áður en sjaldgæfur í dag vegna þess hve öflug og víðtæk bólusetningin er gegn honum.