Heimsmeistaramótið í knattspyrnu stendur nú yfir í Katar og lýkur sjálfri riðlakeppninni síðar í þessari viku. Sumir hafa setið límdir við skjáinn og fylgst með leikjum keppninnar á meðan aðrir hafa séð svipmyndir eða brot úr þeim.
Grindvíkingurinn Björn Birgisson tilheyrir sennilega seinni hópnum en eitt vakti athygli hans í gær þegar hann fylgdist með leikmönnum í einum leiknum.
„Fylgist kannski ekki nógu vel með, en hef aldrei séð annað íþróttafólk en knattspyrnumenn hrækjandi á keppnisvöllum öllum stundum. Minnist þess ekki að svona hafi þetta verið á mínum knattspyrnuárum! Þetta verður að teljast ógeðslegur ósiður!,“ segir Björn á Facebook-síðu sinni og einu sinni sem oftar hefur nokkuð til síns máls.
Að minnsta kosti taka margir undir með honum í athugasemdum við færsluna. Fjölmiðlamaðurinn fyrrverandi Þorfinnur Ómarsson tekur undir og nefnir að leikmenn hafi ekki einu sinni hætt þessu þegar kórónuveirufaraldurinn stóð sem hæst. Þá nefnir einn að hugsanlega væri réttast að spjalda leikmenn sem hrækja á völlinn.