Björn Teitsson, sem vakið hefur athygli undanfarin ár fyrir baráttu sína fyrir bíllausum lífsstíl sendir Sjálfstæðismönnum í Reykjavíkurborg pillu á Twitter síðunni sinni nú síðdegis.
Þar birtir hann myndir í hæðnistóni þar sem hann grínast með athugasemdir Sjálfstæðismanna í borginni um hjólreiðastefnu meirihlutans. „Fkn Dóra Björt buffaði mig og neyddi mig til að hjóla,“ stendur á einni af myndunum sem má skoða hér að neðan.
Þá birtir Pétur M. Urbancic, formaður Hallveigar, ungra Jafnaðarmanna í Reykjavík, skjáskot frá Hildi Björnsdóttur af Instagram.
Þar segist Hildur ekki vera sammála nálgun meirihlutans um að tala minna um valkosti og meira um þvinganir, líkt og að útrýma bílum í borginni.
Björn svarar þessu og segir: „Þetta er ekkert smá gufuruglað. Og þetta á að vera rödd skynsemi, hógværa röddin í þessum frambjóðendahópi.“
— Pétur M. Urbancic (@PeturMarteinn) March 10, 2022
Þetta er ekkert smá gufuruglað. Og þetta á að vera rödd skynsemi, hógværa röddin í þessum frambjóðendahópi.
— Björn Teitsson (@bjornteits) March 10, 2022