Björn Teits: „Enda­laus með­virkni og þol­enda­skömmun“

Fyrr­verandi for­maður Sam­taka um bíl­lausan lífs­stíl, Björn Teits­son er gáttaður á orða­lagi sem lög­reglan notar þar sem hún til­kynnir um á­rekstra.

Til­kynningin sem Björn ræðir á Twitter hljómar meðal annars svona, af vef lög­reglunnar:

Þrjú um­ferðar­slys voru til­kynnt mánu­daginn 5. septem­ber. Kl. 14.09 var bif­reið ekið á hjól­reiða­mann á raf­magns­hlaupa­hjóli á gang­braut á Suður­lands­braut við Hilton Reykja­vík Nor­di­ca. Öku­maðurinn fór af vett­vangi án þess að huga að þeim sem ekið var á, en hann fannst síðar og var miður sín yfir at­vikinu.

Björn er gáttaður:

„Afar furðu­legt tungu­mál notað hér. Tvö at­vik þar sem öku­menn keyra tonni af stáli á ó­varið fólk, í einu þeirra keyrir bíl­stjóri á aðra mann­eskju og stingur af, en við eigum að vor­kenna því "hann var miður sín". Enda­laus með­virkni og þol­enda­skömmun.“