Björn Teits: „Ekki láta ljúga að ykkur“

Björn Teitsson, fyrrverandi formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, biðlar til íbúa Reykjavíkur um að láta ekki ljúga að sér vegna húsnæðismarkaðarins, í tísti sem er nokkuð ljóst að er svar við ummælum Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar í Reykjavík.

„Að byggja á þéttingarreitum er ekki að tefja neitt. Ekki láta ljúga að ykkur. Það sem tefur og hækkar verð gríðarlega eru risastórir óþarfa bílakjallarar. Svo má ræða að setja hærra hlutfall nýrra íbúða í hagkvæmt húsnæði, það væri mjög skynsamlegt,“ skrifar Björn sem hefur barist fyrir þéttingu byggðar undanfarin ár.

Einar lét hafa eftir sér í Morgunblaðinu í dag að stefna borgarstjórnarmeirihlutans í húsnæðismálum hefði orsakað hátt húsnæðisverkð í Reykjavík.

Sjá einnig: Segir sama meiri­hluta á­vísun á á­fram­haldandi neyðar­á­stand á hús­næðis­markaði

„Ég er ekki á móti borg­ar­línu, og ekki á móti því að þétta byggð, en við þurf­um að fara í miklu kraft­­meiri sókn í hús­­næðis­mál­un­um. Það er alltaf verið að tala um fram­tíðina en fram­tíðin er líka á morg­un og það þarf að drífa í þessu,“ seg­ir Ein­ar við Moggann.