Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, tekur ummæli sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, lét falla í viðtali við Fréttablaðið eftir ríkisstjórnarfund í morgun og tætir þau í sig.
Fast hefur verið sótt að ríkisstjórninni að undanförnu, meðal annars vegna málefna flóttamanna og var engu líkara en að brestir væru komnir í ríkisstjórnarsamstarfið í vikunni Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, sakaði Jón Gunnarsson um að fara með ósannindi í viðtali í vikunni.
Katrín var létt eftir fund ríkisstjórnarinnar í morgun eins og lesa má í viðtali Fréttablaðsins við hana. Björn Leví tók sig til og tíndi nokkrar beinar tilvitnanir í Katrínu og velti þeim hressilega fyrir sér á Facebook-síðu sinni eins og sjá má hér að neðan. Tilvitnanirnar í Katrínu eru svartletraðar en tilvitnanir Björns eru skáletraðar.
„Það var bara góður andi á fundinum í morgun“
„Hvernig í ósköpunum getur það verið án þess að fólk geri sér enga grein fyrir alvarleika mála hérna? Salan á Íslandsbanka, verðbólgan, húsnæðiskrísa, útlendingamálin, ... en hey. Það er sól úti.“
.
„Ég hef alltaf lagt áherslu á í þessu samstarfi að ræða öll ágreiningsmál"
„Ágreiningsmálin eru greinilega ekki alvarlegri en svo að það sé bara góður andi. Samt var einn ráðherra að ásaka annan um að bulla í vikunni.“
.
„Það er alltaf vinna að halda saman ríkisstjórn, það er alveg sama hvaða ríkisstjórn það er og í hvaða landi“
„Ekkert ólíklegt, en sumstaðar auðveldara. Góður andi þarna samt ...“
.
„Einstaka þingmenn Vinstri grænna hafa oft haft fyrirvara á þeim málum“
„Já, hérna ... eru þeir þingmenn ekki farnir í aðra flokka núna? Ef frumvarp JG fer í atkvæðagreiðslu, mun þingflokkur VG segja nei eða bara einstaka þingmenn ... eða bara kannski enginn?“
.
„Það er ekkert nýtt, það liggur fyrir að það er ólík stefna milli flokkana í þessum málum eins og reyndar mörgum öðrum og það er alltaf verkefnið að reyna að finna lausn í því.“
„En þið eruð í ríkisstjórn saman og málið fór í gegnum ríkisstjórn í því formi sem það er núna.“
.
„Í útlendingamálunum snýst umræðan svo oft um einstök mál á meðan hefur skort á umræðu um hvert beri að stefna í málaflokknum“
„En það er svo _oft_ rætt um einstök mál af því að það er alltaf sama vandamálið sem er ekki búið að laga frá því síðast. Einstök vandamál sýna almenna gallann í kerfinu!!!“
.
„En ég held að sjónarmið séu uppi um að það væri mikilvægt að finna leið fyrir fólk til að koma hingað til að vinna án þess að þurfa að koma gegnum þetta kerfi“
„Já, af því að sú leið er ekki til nema fyrir þau sem eru með í EES. Einhverra hluta vegna er engin leið fyrir neina aðra ... og gettu hver eru í ríkisstjórn til þess að láta það verða að veruleika en eru ekki enn búin að því!“
.
„Mér finnst það þá ábyrgðarhluti okkar stjórnvalda að reyna að efna til þess samtals sem þarf að eiga sér stað, líka við vinnumarkaðinn og ólíka aðila í samfélaginu“
„Þú ert búin að vera forsætisráðherra í fimm ár. Er ekki sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem axlar ekki ábyrgð?“
.
„Þetta er umræða sem mér finnst við aldrei komast í og er gagnrýnd fyrir að vilja eiga, en ég ætla ekkert að hætta því“
„Ætlar ekkert að hætta hverju? Að komast ekki í umræðuna? Þú ert gagnrýnd fyrir að taka ekki umræðuna, ekki fyrir að vilja taka hana - af því að umræðan er engin nema þegar einstaka mál koma upp aftur og aftur af því að það ER EKKI BÚIÐ AÐ GERA NEITT. Sömu vandamálin aftur og aftur bara.
En nákvæmlega þetta er reynsla mín af pólitískri forystu ríkisstjórnarinnar. Vandamálin sem eru ágreiningur um eru ekki rædd. Þannig helst kannski "góður andi" ... þegar erfið mál eru hunsuð.“