„Svandís ætti hið snarasta að ráða Helga Björns til starfa sem fjórða hjólið undir vagninn, halda uppi stuði í þjóðinni þannig að hún komist í gegnum Covid-skaflinn heil á geðsmunum,“ segir Björn Jóhann Björnsson, blaðamaður og rithöfundur, í Ljósvakapistli á síðum Morgunblaðsins í dag.
Tónlistarmaðurinn Helgi Björns hefur án nokkurs vafa stuðlað að bættri geðheilsu landsmanna með þáttum sínum á laugardagskvöldum í kórónuveirufaraldrinum. Síminn tilkynnti fyrir síðustu helgi að þátturinn síðastliðið laugardagskvöld með Helga og félögum yrði sá síðasti í ár.
„Það voru Ljósvaka vonbrigði að heyra og vonar að hafi verið misheyrn. Helga hefur tekist að halda lífi í landanum, sem er að drepast úr farsóttarþreytu og almennum lífsleiða. Þríeykið hefur staðið sig frábærlega í faraldrinum en er farið að hökta, og er nema von,“ segir Björn sem leggur til að Svandís ráði Helga til starfa sem fjórða hjólið undir vagninn.
„Einfaldast væri að Alþingi setti Helga Björns og félaga á fjárlög, hann hefur líka sýnt að hann deilir út auðnum og fær til sín frábæra gesti í hvern þátt. Ef þetta næst ekki í gegn ætti Síminn að hafa jólaþátt með Helga á hverju laugardagskvöldi til jóla,“ segir Björn og bætir við að í leiðinni væri hægt að safna til góðgerðarmála eins og gert var síðasta laugardag. Þá söfnuðust rúmlega tuttugu milljónir til Mæðrastyrksnefndar.
„Ljósvaka varð að ósk sinni í síðasta þætti og fékk að heyra Helga syngja hið ódauðlega jólalag Ef ég nenni. Við viljum meira svona. Ef Helgi nennir ekki meiru þá er Ingó veðurguð næstbesti kostur.“