Björn svarar fyrir sig: Var að stikna úr hita og fór úr jakkanum

„Ég var að stikna úr hita í þessari at­kvæða­kónga­línu sem við vorum í, í dag. Þannig að ég henti bara frá mér jakkanum til þess að bjarga vitinu,“ segir Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata.

RÚV greindi frá því í gær­kvöldi að Þor­steinn Sæ­munds­son, þing­maður Mið­flokksins, hefði gert at­huga­semd við það að Björn væri ekki í jakka þegar hann gerði grein fyrir at­kvæði sínu um brott­fall ýmissa laga. Var hann einungis í hvítri skyrtu þegar hann fór upp í ræðu­stól.

Um­ræða um klæða­burð þing­manna kemur reglu­lega upp en skemmst er að minnast þess þegar Björn Leví var kallaður inn til skrif­stofu­stjóra þingsins þar sem hann átti það til að fara úr skónum.

Björn Leví tjáir sig um málið á Face­book-síðu sinni og gerir einnig at­huga­semd við frétta­flutning RÚV af málinu.

„Ég bjóst ekki við að fara upp í ræðu­stól en stóðst ekki mátið þegar greidd voru at­kvæði um brott­fall laga af því að stór hluti af því frum­varpi var fenginn úr frum­varpi Pírata um brott­fall tómra laga,“ segir hann og heldur á­fram:

„Alla­vega. Í kjöl­farið kemur Þor­steinn Sæ­munds­son með ein­hvers konar væl um að það dragi úr virðingu þingsins að vera ekki í jakka, skóm eða án bindis. Fljót­leg talning þaðan sem ég var í röðinni sagði mér að minnsta kosti þrír aðrir þing­menn voru ein­mitt ekki í jakka eða með bindi þó þær hafi verið í skóm. Ein var meira að segja í stutt­erma­bol,“ segir Björn sem hnýtir síðan í RÚV fyrir að fjalla um at­huga­semd Þor­steins en ekki um það sem málið snerist.

„Það sem mér finnst hins vegar gríðar­lega merki­legt er að fréttin er ekki um málið, sem er mjög merki­legt. Ekki um það sem ég sagði um málið, sem var að hrósa fjár­mála­ráð­herra (sem er alveg stór­merki­legt) heldur er fréttin um út­lits­at­huga­semd tengda virðingu þingsins frá þing­manni flokks sem talar illa um konur og ör­yrkja á­samt því að nota sendi­herra­stöður sem pólitíska skipti­mynt,“ segir hann og spyr hverjum sé ekki sama um „á­tjándu aldar við­horf um inni­halds­lausa virðingu fyrir skraut­legum um­búðum“, eins og Björn orðar það.

„Jah, miðað við fréttina þá er meiri á­hugi á slíku en inni­haldi um­ræðunnar. Við erum of upp­tekin af um­búðunum til þess að pæla í inni­haldinu, að mínu mati. Sem er eina af á­stæðunum fyrir því að ég geri sem minnst úr þeim um­búðum sem ég klæði mínar skoðanir í. Um­búða­laust, er mitt mottó. Dæmin um það ættu að vera orðin nægi­lega mörg til þess að það þurfi ekki að týna þau til.“

Hann segist skilja skemmtana­gildið en segir fréttina til­gangs­lausa. „Ná­kvæm­lega jafn til­gangs­laus og mér finnst Þor­steinn Sæ­munds­son og Mið­flokkurinn vera á þingi. Hann bein­línis þvælist fyrir góðum málum sem allir eru sam­mála um að séu til bóta fyrir land og þjóð,“ segir hann.