Björn Stein­bekk segist hafa verið opinberlega smánaður: „Sýn heldur á­fram leggja blessun yfir þessi vinnu­brögð“

At­hafna­maðurinn Björn Stein­bekk sem hefur verið gríðar­lega vin­sæll upp á síð­kastið fyrir mögnuð dróna-mynd­bönd af eld­gosinu segist hafa verið opin­ber­lega smánaðar á dögunum.

„Fyrir rúmri vikur var ég sagður ræningi í hlað­varpi sem er í eigu Sýnar og birtist á hlað­varps­vett­vangnum Tal sem Sýn á og rekur.

DV birti frétt um málið sem var síðan tekin úr birtingu og ég beðinn af­sökunar á að fréttinn hafi farið í loftið af hálfu rit­stjóra DV en skaðinn var skeður. Fyrir­sögnin sagði, meðan hún stóð, að ég væri dæmdur ræningi,“ skrifar Björn Stein­bekk.

„Eftir að hafa í­trekað beðið yfir­menn og á endanum for­stjóra og stjórn­endur hjá Sýn um gögn sem færa mætti rök fyrir þeirri stað­hæfingu að ég væri dæmdur fyrir rán og stað­hæft var í áður­nefndu hlað­varpi var mér lofað að ég yrði beðinn af­sökunar á þeim um­mælum sem féllu. Við­komandi sem lét þau falla vildi þó ekki hitta mig og biðjast af­sökunar, ræða málið, út­skýra, hlusta á mína hlið,“ skrifar Björn.

Hann segir að af­sökunar­beiðnina hafa komið á endanum.

„En var með einu for­boðnu orði sem fólk notar ekki í af­sökunar­beiðnum, ef það sannar­lega iðrast en það er orðið „en“ því meðan við­komandi þóttist vera að biðjast af­sökunar þá var hann að rétt­læta sjálfan sig, um­mælin og snúa út úr stað­reyndum og halda á­fram að brigsla mig um af­brot og Sýn heldur á­fram að sam­þykkja, leggja blessun yfir þessi vinnu­brögð með að leyfa þessu að birtast á sínum vett­vangi.“

„Það að ég þurfi að búast við að þurfa, ef ég viðra skoðanir eða er í fjöl­miðlum vegna starfa minna, að út­skýra, bera hendur fyrir mig og vernda börn mín og fjöl­skyldu vegna at­burðar þar sem ég sannar­lega brást fólki og mun marka mitt líf það sem eftir er orðið ó­þolandi en mest um vert, þegar um­mælin eru róg­burður og gífur­yrði er þörf á að­gerðum. Bæði af minni hálfu og þeirra sem vilja rekar fyrir­tæki sem birtir slík gífur­yrði og gefur fólki sem þessu vett­vang fyrir meið­yrði og sleggju­dóma án þess að sæta nokkurri á­byrgð.“

„Svo er það hitt, hvers vegna leggja fyrir­tæki aug­lýsinga­fé í þátt sem þennan þar sem fólk, oft ungt, er rifið niður, smánað af ein­hverjum mið­aldra köllum sem sitja í hljóð­veri við Suður­lands­braut því það átti ekki kannski sinn besta dag á ein­hverjum fót­bolta­velli eða í mínu til­felli, vegna mis­taka sem ég gerði og færði mig inn á geð­deild í sjálfs­morðhugsunum eftir að hafa misst mann­orðið, fyrir­tækið og heimili,“ skrifar Björn.,

Hann segir að á tímum sem við köllum eftir sterkari og já­kvæðari fyrir­myndum fyrir unga drengi er þáttur á vett­vangi Sýnar þar sem eitruð menningin búnings­klefa og á­byrgðar­leysi ræður ríkjum.

„Styrktur af fyrir­tækjum sem fram­leiða til dæmis nammi og nikó­tín púða sem kannski okkar unga fólk þarf ekki stöðuga á­minningu um. Að lokum er vert að hrósa CCEP (Coke Cola á Ís­landi) sem var einn af kost­endum þáttarins. Þau tóku við erindi mínu um meið­yrði og smánun og eftir að hafa kynnt sér málið þótti það sem um mig var sagt ekki falla að gildum fé­lagsins og slitu sam­starfi við þáttinn. Þar sýndi fyrir­tæki á­byrgð og festu. Það væri ó­skandi að fram­kvæmda­stjóri sölu og markaðs­sviðs Nóa Síríus myndi svara í­trekuðum tölvu­pósti um sama mál,“ skrifar Björn að lokum.