Björn Steinbekk, athafnamaður sem meðal annars hefur fengist við markaðsmál að undanförnu, vandar meirihlutanum í borginni ekki kveðjurnar í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í dag.
Þar skrifar Björn um málefni Fossvogsskóla og þær áskoranir sem mætt hafa börnum, foreldrum þeirra og kennurum undanfarin misseri.
„Í raun er myglusaga Fossvogsskóla dæmi um hvernig eflaust gott fólk tekur lélegar ákvarðanir og stoltið virðist síðan þvælast fyrir að breyta um stefnu eða læra af mistökunum, sem eru mörg,“ segir hann meðal annars og vandar Degi B. Eggertssyni og Samfylkingunni ekki kveðjurnar. Hann segir að á meðan Samfylkingin hefur ráðið lögum og lofum í borginni hafi innviðir skólakerfisins á mörgum stöðum lekið, myglað eða orðið ónýtir því ekki var sett fjármagn í viðhald.
„Það kostar um 4 milljarða hið minnsta að byggja einn skóla í Reykjavík og Samfylkingin og þau sem hafa stutt hana til valda síðustu ár og áratugi, með smá hléi, bera mikla ábyrgð á því að nú þarf eflaust að setja 15-20 milljarða í ónýta skóla á næstu árum. Það er enn eitt klúður kerfisins sem Dagur B. Eggertsson á heiðurinn af.“
Björn gagnrýnir einnig umboðsmann barna í grein sinni og hvers vegna hann hafi ekki látið málið sig varða af meiri krafti.
„Er ekki undarlegt að til sé embætti á Íslandi sem virðist rekið af embættismanni sem af öllu að dæma hefur ekki aðgang að Internetinu því annað eins hefur verið fjallað um blæðandi börn með hósta og höfuðverk síðustu árin.“
Björn hvetur fólk til að hugsa sig tvisvar um áður en það kýs Samfylkinguna í kosningunum sem eru framundan.
„Já, það er forvitnilegt að sjá rétt fyrir kosningar að gæðingar Samfylkingarinnar lofa því að ef þau komast til valda í landsmálum verði allt betra en forðast alfarið að tala um klúður flokksfélaga sinna og systkina í borginni. Dagur, farðu nú að stíga upp eða stíga til hliðar,“ segir hann og endar grein sína á þessum orðum:
„Ég vona innilega að þið sem eigið börn í Fossvogsskóla eða leikskólanum Kvistaborg munið hvernig Samfylkingin og þeirra samstarfsflokkar hafa staðið að málum í Fossvogi þegar kosið verður eftir mánuð.“