Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segir sóttvarnaraðgerðir hér á landi vegna Ómíkron-afbrigðis Covid-19 vera strangari en í Bretlandi. Hér á landi þurfi fólk sem er margbólusett við kórónuveirunni að fara í hraðpróf áður en það sækir viðburði á meðan úti þurfi fólk að sýna bólusetningarvottorð.
„Hér á landi komast menn ekki á fjölmenna viðburði t.d. í Hörpu án þess að sýna staðfestingu á neikvæðu hraðprófi sem er tekið innan 48 tíma. Hér er hins vegar ekki beðið um bólusetningarvottorðið sem flestir hafa í síma sínum. Möglunarlaust fara þríbólusettir hér hvað eftir annað í hraðpróf ætli þeir til dæmis á tónleika, í Bretlandi dygði að sýna bólusetningarvottorðið,“ segir Björn á vef sínum bjorn.is.
„Þar standa menn á öndinni yfir árás á mannréttindi með skilríkjakröfu hér gengur allt snurðulaust fyrir sig. Hvers vegna þurfa margbólusettir hér að vera bæði með belti og axlabönd til að fara á tónleika? Af því að þeir sætta sig við það?“
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir sagði í dag að um fjörtíu einstaklingar hafi greinst með Ómíkron-afbrigðið hér á landi síðustu vikur. Sagði hann að rannsóknir sýni að þriðji örvunarskammturinn verndi ekki eins vel gegn Ómíkron líkt og gegn Delta-afbrigðinu. „Reynslan verður að leiða það í ljós hversu lengi verndin mun endast,“ sagði Þórólfur.
Björn bendir á að þrjár vikur séu liðnar frá því að Ómíkron afbrigðið hafi fyrst ratað í fréttir. „Þá var sagt að við yrðum að bíða að minnsta kosti í þann tíma til að vita um hættuna af nýja afbrigðinu. The Telegraph hefur í dag eftir Peter Streicher, sérfræðingi við Háskólann í Jóhannesarborg, að tölfræði sýni að fram til loka nóvember hafi um 3% sýktra dáið í S-Afríku vegna delta-afbrigðis veirunnar, tala látinna ætti því að vera um 200 á dag núna en hún sé 21. Dauðsföllum hafi fækkað eftir að ómikron náði yfirhöndinni.“
Niðurstaðan sé að Ómíkron-afbrigðið sé milt og fólk þurfi ekkert að óttast:
„Hræðslubylgja fór um heiminn fyrir þremur vikum vegna fréttanna frá S-Afríku. Hvað nú? Verður slegið á bjartsýni og haldið áfram að mála skrattann á vegginn?“