Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, vilji letja og hræða almenning á kostnað andstæðinga sinna í stjórnmálum.
Björn gerir grein Sigmundar í Morgunblaðinu í dag að umtalsefni á heimasíðu sinni, en í greininni fjallar Sigmundur í nokkuð löngu máli um nýútkomna lofslagsskýrslu Sameinuðu þjóðanna þar sem dregin er upp dökk mynd af stöðu mála. Sigmundur gerir lítið úr skýrslunni sem hann segir að sé skrifuð af fólki með líkar skoðanir, aktívistum sem berjast fyrir tilteknum viðbrögðum.
Sigmundur sagði einnig í grein sinni að áframhaldandi loftslagsstefna íslenskra stjórnvalda feli í sér mestu frelsisskerðingu um áratuga skeið og markmiðið sé að draga úr framleiðslu hér á landi, hækka skatta á almenning, stýra neyslu, hefta ferðafrelsi og minnka landbúnað. Lagði Sigmundur það til að Ísland þurfi að nýta tækifærin betur. Það væri best fyrir heiminn ef sem mest af framleiðslunni fer fram á Íslandi.
„Heimurinn þarf miklu meiri endurnýjanlega orku. Þar getur Ísland gert ótrúlega hluti og þarf að nýta tækifærin betur. Það mun þýða að losun landsins aukist í stað þess að minnka en á heimsvísu mun það draga úr losun, reynast það besta sem við getum gert í loftslagsmálum og bæta lífskjör Íslendinga,“ sagði hann meðal annars.
Björn vitnar svo í grein sinni í viðtal Morgunblaðsins í dag við Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóra Klappa – grænna lausna, en fyrirtækið vinnur meðal annars með fyrirtækjum sem vilja lágmarka kolefnisfótspor sitt. Sagði Jón Ágúst að Ísland væri í kjörstöðu til að snúa vörn í sókn með þróun grænna tæknilausna. Mikilvægt væri að ráðamenn hvetji almenning til dáða frekar en að halda uppi hræðsluáróðri. Björn tekur heilshugar undir þetta og gagnrýnir Sigmund Davíð fyrir meintan hræðsluáróður.
„Sigmundur Davíð vill einmitt letja og hræða almenning á kostnað andstæðinga sinna í stjórnmálum. Það er alls ekki óhjákvæmilegt að íslenskur landbúnaður minnki vegna grænna lausna. Hrakspá Sigmundar Davíðs rætist komist hann til valda til að vinna að henni. Þeim ósköpum má þó forða.“