Björn segir á­standið í Grafar­vogi bitna mest á eldri borgurum: „Al­ger­lega ó­líðandi í eitt af stærstu hverfum borgarinnar“

Björn Gísla­son, borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins, segir það af og frá ekki sé starfandi heilsu­gæslu­stöð í Grafar­vogi.

„Það er al­ger­lega ó­líðandi að eitt af stærstu hverfum borgarinnar, Grafar­vogur í Reykja­vík, þar sem bú­sett eru um 18 þúsund manns, séu án heilsu­gæslu­stöðvar. Eins og ekki hefur farið fram hjá í­búum þar, þá var skellt í lás á Heilsu­gæslu­stöð Grafar­vogs í þessum mánuði vegna myglu­skemmda og raka í hús­næði heilsu­gæslunnar. Þetta þýðir að í­búar Grafar­vogs eru án heilsu­gæslu­stöðvar innan hverfisins og í­búum gert að sækja læknis­þjónustuna í Árbæ í a.m.k. eitt ár,“ skrifar Björn á Vísir.is í dag.

„Það bitnar veru­lega á eldri í­búum hverfisins og sér­stak­lega á þeim sem eiga þess ekki kost að sækja þjónustuna nema með al­mennings­sam­göngum. Á vef heilsu­gæslunnar segir að til að komast úr Grafar­vogi á heilsu­gæsluna þurfi not­endur að taka tvo vagna eða svo vitnað sé orð­rétt í texta af vef­svæði heilsu­gæslunnar:

„Til að komast frá Spönginni í Hraun­bæ 115 með Strætó er hægt að taka leið 6 og fara út á stoppi­­stöðinni Ár­tún A (sem er á brúnni). Gengið niður göngu­­stíginn í stoppi­­stöðina Ár­tún D (sem er undir brúnni) og leið 16 tekin. Farið er út á stoppi­­stöðinni Bæjar­braut en þaðan er 2 mínútna gangur að Hraun­bæ 115 (Heilsu­­gæslan í Árbæ er í sama húsi).“

Hann segir þessa leiðar­lýsingu sýna, svo ekki verði um villst, að ekki er hlaupið að þjónustunnir fyrir íbúa Grafar­vogs.

„Og því er ekki furða að það gæti mikillar ó­á­nægju meðal íbúa hverfisins.

Hefði t.d. ekki verið eðli­legra og skyn­sam­legra að leysa málið með nær­tækari lausnum en að fara með starf­semi heilsu­gæslunnar í önnur hverfi? Víða er at­vinnu­hús­næði laust í Grafar­voginum, t.d. í Hver­a­foldinni og Gylfa­flötinni svo dæmi séu tekin.“

„Í þessu sam­hengi gætum við í­myndað okkur hvað t.d. Akur­eyringar, með svipaða í­búa­tölu og Grafar­vogur, eða rúm­lega 19 þúsund manns, myndu segja ef allt í einu yrði heilsu­gæslunni þar lokað og þeir þyrftu að sækja heilsu­gæsluna í annað bæjar­fé­lag. Eins mætti setja þetta í sam­hengi við Mos­fells­bæ en Mos­fellingar og bæjar­yfir­völd þar myndu seint láta bjóða í­búum sínum upp á það.“

„Það gerum við borgar­full­trúar heldur ekki, enda er það skylda okkar að gæta hags­muna borgar­búa og þar með talið að sjá til þess að þeir hafi gott að­gengi að heilsu­gæslu í sínum hverfum.“

„Ég átti þess kost að taka málið upp við for­sætis­ráð­herra, Katrínu Jakobs­dóttur, en þess er að vænta í dag að hún ræði málið við heil­brigðis­ráð­herra, Willum Þór Þórs­son. Jafn­framt mun ég taka málið upp á vett­vangi borgar­stjórnar Reykja­víkur, enda um hags­muna­mál íbúa innan eins stærsta hverfis borgarinnar að ræða,“ skrifar Björn að lokum.