Björn Birgisson, íbúi í Grindavík, er skiljanlega orðinn þreyttur á skjálftahrinunni sem virðist engan endi ætla að taka. Nú eru rúmar tvær vikur liðnar síðan hrinan fór af stað og hafa Grindvíkingar fundið vel fyrir skjálftunum enda upptök þeirra nánast undir fótum þeirra.
„Þreyta. Allir þessir jarðskjálftar! Hægt og bítandi smjúga þeir inn í sálartetrið. Stærri skjálftarnir - yfir 3 á Richterskvarðanum - koma allir eins og óþægileg högg hérna - við erum svo nálægt upptökunum,“ segir Björn sem ræddi skjálftana í viðtali við Fréttablaðið á dögunum.
„Síðan koma þeir minni, eins og til að halda okkur stöðugt við efnið, en á þessu svæði nemum við þá flesta. Ekkert upprof, engin hvíld frá þessu og móðir jörð gerir engan greinarmun á nóttu og degi hvað þetta varðar,“ segir Björn í færslu sem hann skrifaði á Facebook í morgun.
Hann segir að dagarnir og næturnar taki mið af þessu og kveðst hann sofna seint og vakna allt of snemma. „Sólarhring eftir sólarhring. Nætursvefninn gæti að meðaltali verið á bilinu 4 til 5 tímar. Vaknaði rétt fyrir 9 í morgun - ekki við neinn hefðbundinn vekjara - heldur dúndurskjálfta sem batt snöggan endi á um 5 tíma svefn. Svona er þetta sólarhring eftir sólarhring.“
Björn segir að auðvitað safnist upp þreyta en hann kveðst eiga því láni að fagna að þurfa ekki að mæta reglulega til vinnu.
„Á meðan þessi orð voru hripuð niður hafa ekki færri en sjö skjálftar smeygt sér inn í vitundina og það er nokkuð ljóst að þar er ekki endalaust pláss fyrir þessa dynti í náttúrunni.“