Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, tekur fyrir orð Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, úr Silfrinu frá því í morgun. „Borgaraleg réttindi eru ekki til staðar ef öryggi er ekki tryggt,“ sagði Vilhjálmur í Silfrinu.
„Þetta er rétt. En hvernig tryggjum við öryggi?“ spyr Björn Leví.
„Hér er verið að bjóða upp á tvær lausnir. Annars vegar forvirkar rannsóknarheimildir lögreglunnar þannig að hún geti fylgst með nokkurn vegin hverjum sem er, hvar sem er, án dómsúrskurðar. Þetta er lausn sem á að koma í veg fyrir brot áður en þau gerast,“ skrifar Björn Leví í færslu á Facebook.
Hann segir vandamálið við þessa lausn vera að óöryggið verði alltaf til staðar og eina „vörnin“ er njósnastarfsemi lögreglu „sem þarf óhjákvæmilega að ná til miklu fleiri en mögulegra brotaaðila.
„Sögulega séð beinist slíkt eftirlit einnig að jaðarsettum hópum en ekki gagnvart þeim sem hafa vald í samfélaginu - sem geta þá í kjölfarið haldið áfram "eðlilegu" lífi í virki forvirkra rannsóknarheimilda lögreglunnar,“ skrifar Björn Leví.
„Höfum það einfaldlega á hreinu, yfirgripsmikil njósnastarfsemi opinberra valdhafa hefur aldrei endað vel. Aldrei. Það hefur aldrei verið skaðlaus starfsemi. Aldrei.“
Hinn möguleikinn sé að við spyrjum okkur af hverju sé ekki öryggi. „Er skipulögð glæpastarfsemi að ógna öryggi almennra borgara? Af hverju? Er það kannski af því að þegar lög eru sett um að banna eitt eða annað þá er ekkert pælt í afleiðingunum af því?“
Björn Leví segir þingmenn almennt vilja vel, þau sjái afleiðingar slæmra hluta og vilja grípa til einfalda lausna – að banna hluti.
„Það hlýtur að leysa vandann, er það ekki? Nei. Eins og sagan kennir okkur þá varð vandinn bara enn meiri, bæði áfengisvandinn sjálfur og skipulagða glæpastarfsemin að auki.“
„Kannski er lausnin hérna frekar að horfa á orsakir þess að öryggi er ógnað. Er það skipulögð glæpastarfsemi? Hvernig væri að lögleiða og regluvæða frekar í staðinn fyrir að banna og refsa? Já, fólk er enn að selja landa (sem er ólöglegt) en það er langt frá því að vera á sama skala og skipulögð glæpastarfsemi Al Capone eða skyldra glæpasamtaka.“
„Við viljum lögreglu sem vinnur fyrir fólk en njósnar ekki um það. Við viljum lögreglu sem hjálpar fólki og rannsakar þá sem ganga á borgararéttindi okkar,“ segir Björn Leví.
Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan: