Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir Sjálfstæðismenn fara með fleipur um lóðaskort í Reykjavík og vísar til orða Diljá Mist Einarsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins í Vikulokunum.
Hann vísar í gögn sem sýni að leyfi séu mun fleiri en verkefnin, þá þurfi að taka með í reikninginn fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar þar sem segir að framfærsluviðmið eigi ekki að hækka en það sé óhjákvæmilegt vegna hækkandi aldurs þjóðarinnar. Þá sé það stefna stjórnvalda að það verði ekki meiri fjölgun í einum landshluta umfram annan, því sé Reykjavík að fylgja með því að byggja í samræmi við núverandi hlutfall íbúa:
„Önnur sveitarfélög eru hins vegar ekki að ná að sinna sínum hluta. Þetta eru staðreyndirnar í málinu og þær hafa verið aðgengilegar í þó nokkurn tíma,“ segir hann og beinir orðum sínum að Diljá Mist:
„Býst ég við því að Diljá og aðrir sjallar aðlagi málflutning sinn á nokkurn hátt? Nei, auðvitað ekki. Gögn bíta ekki á þá áróðursvél. Af gefinni reynslu halda þau bara áfram að mala sínar áróðurssetningar sama hvað ...“
Diljá svaraði honum með því að vísa í úttekt Samtaka iðnaðarins þar sem segi að lóðaskortur sé í Reykjavík. Björn Leví svaraði að bragði:
„Þetta er ekki morfís samkeppni. Þarna eru gögn sem segja söguna,“ segir hann. „Þú ættir að vita að það þarf smá rýni á þeirra upplýsingar. Þetta eru hagsmunasamtök.“
Hann segir Reykjavík á réttri leið. „1900 íbúðir í byggingu er heldur ekkert til þess að kvarta yfir. Það þarf að byggja um 2000 - 2500 íbúðir á ári á öllu landinu til þess að halda í við fólksfjölgun. Þar sem Reykjavík er 1/3 af mannfjölda þá þýðir það um 700 íbúðir á ári.“