Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, mætti í pontu Alþingis í dag með Útvegsspilið. Hann flaggaði því og las upp reglurnar á meðan Alþingi var að ræða um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða og nýtti Björn Leví bæði sjónvarpsþættina Verbúðin og Útvegsspilið máli sínu til stuðnings.
„Í tilefni þessa frumvarps og þessi almennu vandamál sem við erum að glíma við í í íslensku samfélagi um að það þurfi að skapa meiri sátt um fiskveiðistjórnarkerfið, að þá mundi ég vilja segja að það er kannski rangt til orða gripið að það eigi að skapa meiri sátt. Við þurfum að tryggja sanngirni,“ sagði Björn Leví.
Hann sagði að tilfinning landsmanna væri núna að fiskveiðistjórnunarkerfið væri ekki sanngjarnt.
„Í því tilefni. Þá er þetta hérna æðislega spil, Útvegsspilið,“ sagði Björn Leví og opnaði spilakassann en spilið kom út 1977.
„Ég er einu ári eldri en þetta spil. Það er orðið ansi gamalt sem er annað sem er merkilegt við þetta. Þetta er einmitt eldra heldur en kvótakerfið.“
„Í þessu fylgir þessi fína hérna fiskiplaggat sem segir okkur hvaða hérna stofnar eru hérna. Nú vantar heilan helling þegar enginn makríll sýnist mér, enginn makríll.“
Björn Leví hélt áfram að fara í að opna kassann og opnaði leikreglurnar. Þá nefndi hann að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hafi skrifað formálann í spilinu.
„Það er hægt að ákveða að spila t.d. klukkustund í einu eða þangað til bankinn er tómur. Mér finnst það mjög áhugavert í ljósi sögunnar með þessa gömlu góðu banka,“ sagði Björn. Áður en hann færði sig aftur í raunveruleikann.
„Við erum búin að spila of lengi í því. Bankinn er tómur,“ sagði Björn Leví og bætt við að. .“Við þurfum ekki að endurútgefa þetta spil. Við þurfum ekki að endurútgefa kvótakerfið, við þurfum að gera nýtt,“ sagði Björn Leví að lokum.