Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segist vilja taka aðeins upp hanskann fyrir Birgi Þórarinsson, sem fór nýlega yfir til Sjálfstæðisflokksins eftir að hann var kosinn á þing fyrir Miðflokkinn.
Að hans mati hefði Birgir átt að hætta í Miðflokknum á síðasta kjörtímabili og hafa málflutningi „klaustursmanna“ og ofsóknum sem hann segist hafa verið beittur. Engu að síður hafi hann fullan rétt á því að hætta núna.
Björn vísar í færslu sinni á Facebook til orða sem Birgir lét falla í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Þar sagði Birgir að allt frá Klausturmálinu hafi honum ekki liðið vel í Miðflokknum og það hafi verið unnið markvisst gegn því að hann kæmist áfram í flokknum. Hann segir að Erna Bjarnadóttir hafi skipt um skoðun um að fylgja honum ekki í Sjálfstæðisflokkinn en hún hafði áður tjáð honum að hún ætlaði að fylgja honum.
„Ég er búinn að leggja mig fram og við Erna lögðum okkur verulega fram í þessari kosningabaráttu og höfðum við ekki haft góða frambjóðendur og aðstoðarfólk í Suðurkjördæmi og náð þeim árangri sem þar náðist er ég ekki viss um að flokkurinn hefði náð inn á þing,“ sagði Birgir.
Björn segir að það sé önnur leið til að túlka viðmót Birgis; Í stað þess að tala um sjálhverfa ákvörðun og svik við kjósendur sé hægt að líta á þetta sem tilraun Birgis til að hjálpa Miðflokknum að ná þingsætum.
„Það þurfti ekki nema um það bil 1300 færri atkvæði á landsvísu til þess að flokkurinn væri undir 5% þröskuldnum (eins fáránlegur og sá þröskuldur er samt). Það munaði ekki nema 7 atkvæðum að Birgir væri ekki kjördæmakjörinn, sem dæmi,“ bendir Björn á.
Það sé eðlilegt að mati Björns að Birgir stígi frá núna þó það hefði verið skiljanlegra ef hann hefði stigið fyrr frá.
„Þarna er semsagt hanskinn sem ég tek upp í þessu máli. Auðvitað er það ekki Birgir sem á að þurfa að segja sig frá miðflokknum og kjósendum hans í suðurkjördæmi, ábyrgðin á öllu þessu veseni liggur hjá gerendunum í þessu máli.“