„Niðurstaðan hlýtur að segja okkur að þar sé á ferð floppstjórnmálamaður,“ segir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Þar gerir Björn Leví mál Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra að umtalsefni, en eins og kunnugt er var Bjarni viðstaddur gleðskap í Ásmundarsal á Þorláksmessu sem lögregla hafði afskipti af vegna meintra brota á sóttvarnareglum.
Björn Leví segist hafa veitt einni tiltekinni athugasemd á samfélagsmiðlum athygli, en hún var sett undir frétt af málinu. Umrædd athugasemd var einföld, en í henni stóð einfaldlega „toppmaður“, að sögn Björns.
„Þetta er mjög merkileg fullyrðing í samhengi þeirra atburða sem við erum að ganga í gegnum. Í samhengi þeirrar hegðunar sem birtist okkur á aðfangadagsmorgun. Í kjölfar fyrstu frétta af málinu, þar sem óljóst var hvaða ráðherra hafði sótt fjölmennt teiti í miðbænum, hefur komið fram afsökunarbeiðni um að húsið hafi fyllst á þeim 15 mínútum sem ráðherra var í samkvæminu. Afsökunarbeiðni sem lætur sóttvarnabrotið líta út fyrir að vera yfirsjón og óheppilegt hliðarspor í annars vel heppnuðum kúlujólum. Dagbók lögreglu og vitni lýsa atburðum Þorláksmessu hins vegar á annan hátt. Húsið hafi verið troðfullt þegar ráðherra bar að garði og hann hafi verið þar nær klukkutíma en 15 mínútum. Ekki er nóg með að ráðherra hafi þannig brotið sóttvarnalög heldur er afsökunarbeiðnin full af rangfærslum um atvik máls.“
Björn Leví segist ekki efast um að Bjarni sé ágætis faðir, afi og eiginmaður. „Að hann reynist vinum og fjölskyldu vel og sé í allan stað toppmaður á þeim vettvangi. Slíkt ágæti yfirfærist hins vegar ekki sjálfkrafa yfir í pólitíkina,“ segir Björn og bendir á að það að vera góður í fótbolta geri mann ekki að góðum stjórnmálamanni og að vera góður að baka geri mann ekki að góðum stjórnmálamanni.
„Kannski er líklegra að toppmaður sé góður stjórnmálamaður en einhver auli en það er ekki sjálfsagt og af verkunum skuluð þið þekkja þá. Það er mjög skiljanlegt að við reynum að velja toppfólk í ábyrgðarstöður. Það ætti því að vera jafn skiljanlegt að við hættum að velja fólk sem stendur ekki undir þeirri ábyrgð.“
Björn Leví segir að Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, hafi kallað þetta sóttvarnahliðarspor og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, kallað málið óheppilegt og minnt á stóru myndina. Þegar menn hafi beðist afsökunar og útskýrt mál sitt eigi að vera svigrúm til að virða það og fyrirgefa.
„En er þetta hliðarspor eða hluti af einbeittum brotavilja? Það muna allir eftir vinkonuhittingi annars ráðherra úr sama flokki frá því rétt fyrir vetrarbylgjuna. Það ættu allir að kannast við andmæli þingmanna sama flokks um sóttvarnaaðgerðirnar. Að auki lítur út fyrir að ekki sé allt satt og rétt í afsökunarbeiðninni. Hvernig á að bera virðingu fyrir því? Hvernig á fyrirgefning að geta byggst á slíkri afsökunarbeiðni? Já. Fjármálaráðherra er kannski toppmaður. En það verður seint hægt að sýna fram á þá eiginleika á stjórnmálaferli hans, allt frá sögunni um sjóð 9 til skattaskjólsskýrslna og til sóttvarnabrota. Niðurstaðan hlýtur að segja okkur að þar sé á ferð floppstjórnmálamaður.“