Björn Leifsson ekki af baki dottinn: „Við erum með stór plön í pípunum“

Björn Leifsson, stofnandi World Class, er ekki af baki dottinn þrátt fyrir áföll síðustu mánaða í tengslum við COVID-19-faraldurinn.

Líkamsræktarstöðvum var gert að skella í lás þegar faraldurinn stóð sem hæst, en með hækkandi sól er farið að birta til í þeim efnum og geta líkamsræktarstöðvar nú starfað að mestu eðlilega – eða því sem næst.

Björn er í áhugaverðu viðtali við ViðskiptaMogganum þar sem hann greinir frá því að tekjumissir fyrirtækisins vegna samkomutakmarkana í fyrra hafi verið 2,4 milljarðar króna. Tekið var 1.200 milljóna króna til að brúa þetta bil og svo fékk World Class 120 milljónir í styrki frá ríkinu í fyrra – upphæð sem hrekkur skammt, að sögn Björns.

„Það dugir ekki fyrir launum hjá okkur í einum mánuði. Lokunarstyrkir koma sér mjög vel fyrir minni fyrirtæki, á borð við hárgreiðslustofur og snyrtistofur, og þótt þetta séu vissulega miklir peningar breyta þeir litlu fyrir stærri fyrirtæki,“ segir hann meðal annars.

Í viðtalinu kveðst BJörn gera sér vonir um að lokanir séu að baki og raunar er hann svo bjartsýnn að hann undirbýr frekari uppbyggingu World Class-veldisins. „Við erum með stór plön í pípunum,“ segir hann en kveðst þó aðspurður ekki geta tjáð sig frekar um þau. Hann ætli þó að láta verkin tala.