Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallar eftir því að RÚV biðjist einnig afsökunar á að sóttvarnareglur voru brotnar við veitingu Íslensku bókmenntaverðlaunanna á Bessastöðum í síðustu viku.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, birti í gær færslu á Facebook þar sem hann sagðist bera fulla ábyrgð á því að gestir hafi ekki borið grímu þegar verðlaunin voru afhent. Hann sagði enn fremur að forsetaembættinu hafi verið tjáð af starfsfólki RÚV, sem sá um útsendingu frá viðburðinum, að viðburðurinn væri ekki á skjön við þær reglur sem í gildi voru.
Björn segist í pistli á heimasíðu sinni ekki vilja spá fyrir um það hvort eða hvaða afleiðingar verða af þessu sóttvarnabroti. Miklu skiptir þó að það skuli upplýst.
„Sóttvarnareglurnar valda vandræðum á tímapunkti þegar þær standast ef til vill ekki lög, yrði látið á það reyna. Nú birtast læknisfræðileg og lögfræðileg rök fyrir að ríkisstjórnin hafi að ráði sóttvarnayfirvalda stigið of varlega til jarðar með afléttingarskrefunum sem kynnt voru föstudaginn 28. Janúar,“ segir Björn sem kallar eftir því að RÚV bregðist við.
„Ætla mætti að atvikið á Bessastöðum hafi farið fram hjá vandlætingarfullri fréttastofu ríkisútvarpsins. Er RÚV kannski vanhæft til að fjalla um málið vegna aðildar að brotinu? Það má þó biðjast afsökunar á ráðunum sem gefin voru úr Efstaleiti. Það geta fleiri verið stórmannlegir en forseti Íslands.“