Viðræður um áframhaldandi samstarf Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna eftir kosningarnar um liðna helgi hafa farið fram undanfarna daga og munu halda áfram næstu daga.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og fyrrverandi borgarfulltrúi, veltir vöngum um stöðu mála eftir yfirlýsingu sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sendi frá sér í morgun.
Í henni var greint frá viðræðum sem hann átti við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formann VG, um gang mála í ríkisstjórnarviðræðum. Var tekið fram að forseti myndi halda áfram að fylgjast með gangi mála eftir þörfum.
Björn Ingi segir ljóst að ekki þurfi að koma til þess að Katrín skili umboði sínu sem forsætisráðherra eftir kosningarnar.
„Ríkisstjórnarflokkarnir þrír héldu meirihluta sínum og gott betur en það og ljóst er orðið að Katrínu er ætlað að leiða ríkisstjórnina áfram, þrátt fyrir breytingar á ráðherrastólum að öðru leyti,“ segir Björn Ingi en ýmsar getgátur hafa verið uppi um skipan ráðherra. Bjarni er formaður stærsta flokksins eftir kosningarnar á meðan Sigurður Ingi er formaður þess flokks sem vann stærstan sigur í kosningunum. Á móti kemur hefur Katrín verið farsæl í stóli forsætisráðherra og notið mikils trausts meðal landsmanna.
Björn Ingi hefur þó ekki trú á því að Bjarni Benediktsson verði áfram fjármálaráðherra, hvað þá forsætisráðherra.
„Hermt er, samkvæmt heimildum Viljans, að Bjarni Benediktsson gæti hugsað sér embætti utanríkisráðherra í nýrri ríkisstjórn og að Sigurður Ingi verði þá efnahags- og fjármálaráðherra.“