Björn Ingi um upp­gjör Bjarna og Guð­laugs Þórs: Er þetta raun­veru­leg á­stæða þess að Gulli vill stólinn hans Bjarna?

Björn Ingi Hrafns­son, fjöl­miðla­maður og fyrr­verandi borgar­full­trúi, segir að fram­undan séu at­hyglis­verðir tímar í Sjálf­stæðis­flokknum.

Guð­laugur Þór Þórðar­son er talinn ætla að gera at­lögu að for­manns­stólnum á lands­fundi Sjálf­stæðis­flokksins um aðra helgi og færi hann þá gegn sitjandi for­manni, Bjarna Bene­dikts­syni, sem lýst hefur vilja til að leiða flokkinn á­fram.

Guð­laugur Þór sagði í við­tölum í gær að hann hefði fengið fjölda á­skorana um að bjóða sig fram. Þá sagði hann að staða flokksins væri ekki góð, með til­liti til niður­staðna kosninga á undan­förnum árum, og við því þyrfti að bregðast. Guðlaugur sagðist þó ekki vera búinn að gera upp hug sinn; ef hann færi fram fengi Bjarni fyrstur manna að vita það.

Björn Ingi segir að málið eigi sér lík­lega dýpri rætur en það.

„Eins og valda­taflið blasir við mér í Val­höll meta Guð­laugur Þór og stuðnings­menn hans það svo, að Bjarni Bene­dikts­son hyggist skáka honum úr ríkis­stjórn á næstunni í stað Jóns Gunnars­sonar sem á að vera á­fram. Guð­rún Haf­steins­dóttir komi inn í ríkis­stjórn, en ekki í dóms­mála­ráðu­neytið eins og til stóð,“ sagði Björn Ingi á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi.

„Þess vegna fer allt á fullt; góðum og gegnum sjálf­stæðis­mönnum kippt út af skrá um lands­fundar­full­trúa og aug­ljóst að hörð kosninga­bar­átta er fram­undan. Kannski er at­burða­rás farin af stað sem ekki er hægt að stöðva öðru­vísi en með kosningu og hreinu upp­gjöri, því hafi Bjarni ekki verið áður búinn að á­kveða að setja Guð­laug Þór af, er næsta víst að hann geti vart annað nú, nái hann endur­kjöri, þar sem erfitt er að vera flokks­for­maður í ríkis­stjórn með ráð­herra úr eigin flokki sem hefur eigin­lega lýst á mann van­trausti,“ segir Björn Ingi og endar færsluna á þessum orðum:

„Nú kemur í ljós hversu stór og öflugur Huldu­herinn er í raun og veru. Þetta eru at­hyglis­verðir tímar.“